Frumvarp um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða birt í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að umfangsmiklu frumvarpi sem miðar að því að flýta uppbyggingu raforkuinnviða, hraða úrlausn ágreiningsmála og auka skilvirkni í leyfisveitingum. Veigamestu ákvæðin lúta að eignarnámi og aðgangi að landi, umhverfismati framkvæmda, tengikostnaði nýrra virkjana, aflviðmiði rammaáætlunar og eftirfylgni með fjárfestingum í flutningskerfi raforku.
Flýtimeðferð og skilvirkara eignarnámsferli
Með frumvarpinu eru settar skýrari reglur um samningaviðræður, upplýsingagjöf og afgreiðslu eignarnámsbeiðna. Lagt er til að lögfestur verði sex mánaða málshöfðunarfrestur vegna ákvörðunar ráðherra um eignarnám og að mælt verði fyrir um flýtimeðferð slíkra mála fyrir dómstólum. Markmiðið er að ágreiningur verði að jafnaði leiddur til lykta á innan við tólf mánuðum svo að framkvæmdir tefjist ekki um mörg ár vegna dómsmála eins og dæmi eru um.
Jafnframt er lagt til að ráðherra verði heimilt að leyfa umráðatöku og framkvæmdir áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir um fjárhæð eignarnámsbóta þegar ekki er ágreiningur um lögmæti eignarnámsins sjálfs. Sama heimild geti einnig átt við þegar framkvæmd er nauðsynleg vegna ástands sem ógnar almannahag, raforkuöryggi eða öðrum brýnum hagsmunum. Réttur landeigenda til fullra bóta helst óskertur sem og heimild til þess að krefjast tryggingar fyrir væntanlegum bótum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að meiri hluti sameigenda geti að jafnaði samið við dreifiveitu um nauðsynlegar framkvæmdir sem ekki eru matsskyldar samkvæmt lögum um umhverfismat. Loks er lagt til að útgáfa framkvæmda- eða byggingarleyfis verði ekki skilyrði fyrir afgreiðslu eignarnámsbeiðni, enda liggi fyrir nauðsynleg niðurstaða um umhverfismat. Þannig megi taka fyrr afstöðu til landréttinda án þess að afla þurfi sömu leyfa aftur vegna tafa í eignarnámsferlinu.
Samþætting umhverfismats og leyfisveitingar
Heimild til samþættingar umhverfismats og leyfisveitingar er þegar fyrir hendi en hefur ekki verið nýtt sem skyldi. Með frumvarpinu er lagt til að samþætting verði meginregla í tilviki virkjunarframkvæmda og að skýrt verði betur í lögum hvernig samþætting skuli framkvæmd, einkum verkaskipting stjórnvalda, samræming tímaáætlana og samhliða vinnsla umhverfismats og leyfisumsókna. Markmiðið er að stytta heildartíma málsmeðferðar.
Einnig eru lagðar til skýrari reglur um uppfærslu umhverfismats þegar framkvæmd breytist eða bæta þarf úr annmörkum á fyrra mati. Þá verði hægt að afmarka viðbótarvinnu við það sem þarf að uppfæra eða bæta úr og nýta áfram þá þætti fyrra mats sem halda gildi sínu.
Tengikostnaður taki mið af heildaráhrifum
Lagt er til að við ákvörðun greiðslu vegna tengingar nýrrar virkjunar verði tekið mið af heildaráhrifum tengingarinnar á raforkukerfið. Markmiðið er að greiðslan endurspegli ekki aðeins þann kostnað sem tengingin kallar á heldur einnig þann ávinning sem hún hefur fyrir kerfið, svo sem vegna minni flutningstapa, betri nýtingar fyrirliggjandi flutningsvirkja eða minni þarfar fyrir aðrar fjárfestingar. Breytingin, ásamt skýrari heimild til innmötunargjalda, getur í ákveðnum tilvikum skapað forsendur fyrir verulegri lækkun kerfisframlags og dregið þannig úr hamlandi upphafskostnaði við nýja orkuöflun og atvinnuuppbyggingu, svo sem á viðkvæmum kerfissvæðum.
Lagt er til að aflmörk verndar- og orkunýtingaráætlunar hækki úr 10 MW í 25 MW vegna raforkuvinnslu og úr 50 MW í 125 MW vegna varmaorkuvinnslu. Markmiðið er að skapa hvata til hagkvæmari nýtingar virkjunarkosta og stuðla að hlutfallslega betri nýtingu auðlinda og innviða miðað við umfang rasks. Kröfur um umhverfismat, skipulag og leyfisveitingar haldast óbreyttar. Þá er lagt til að Alþingi geti tekið tiltekna virkjunarkosti í biðflokki aftur til umfjöllunar án þess að endurtaka þurfi faglegt mat á vettvangi rammaáætlunar sem þegar hefur farið fram og er enn talið fullnægjandi.
Betri nýting raforkukerfisins og aukin eftirfylgni með framkvæmdum
Lagt er til að flutningsfyrirtækinu verði heimilt að forgangsraða afgreiðslu tengibeiðna þegar afhendingargeta er takmörkuð. Forgangsröðun skal byggjast á hlutlægum og gagnsæjum reglum sem Raforkueftirlitið samþykkir. Jafnframt fái Raforkueftirlitið auknar heimildir til að fylgja eftir fjárfestingum samkvæmt kerfisáætlun þegar tafir verða af ástæðum sem flutningsfyrirtækið ber sjálft ábyrgð á. Hafi krafa um að ráðast í framkvæmdir ekki borið árangur innan þriggja mánaða geti eftirlitið við tilteknar aðstæður staðið fyrir útboði á framkvæmdinni.
Frumvarpið felur jafnframt í sér sérstakar ráðstafanir til að styrkja öryggi raforkukerfisins. Lagt er til að í raforkulög verði tekin sérstök ákvæði um vernd raflína á landi og í sjó. Jafnframt er lagt til að flutningsfyrirtæki, dreifiveitur og vinnslufyrirtæki afmarki í viðbragðsáætlunum sínum aðgangsstýrð svæði og trúnaðarupplýsingar sem þarfnast sérstakrar verndar. Settur verði lagarammi um bakgrunnsathuganir lögreglu vegna starfa sem fela í sér aðgang að sérstaklega viðkvæmum mannvirkjum, stjórnkerfum eða upplýsingum, með skýrum skilyrðum um nauðsyn, meðalhóf og réttarvernd einstaklinga.
Frekari einföldun stjórnsýslu og eftirlits
Loks felur frumvarpið í sér almennari úrbætur á stjórnsýslu umhverfis- og orkumála. Þar á meðal er samræming leyfisveitinga, eftirlitsheimilda og þvingunarúrræða Umhverfis- og orkustofnunar, skýrari reglur um bókhaldslegan aðskilnað raforkufyrirtækja og breytingar á afmörkuðum málsmeðferðarreglum um framkvæmd raforkueftirlits. Einnig eru lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um meðhöndlun úrgangs til að styðja við samþætta málsmeðferð, einfalda starfsleyfisskyldu og laga tíðni eftirlits að áhættu. Almennt er breytingunum ætlað að draga úr óþarfa töfum og tvíverknaði, auka fyrirsjáanleika og greiða fyrir uppbyggingu raforkuinnviða, án þess að slaka á kröfum um umhverfisvernd, almenningssamráð og réttindi landeigenda.
Frumvarpið er liður í áherslum ríkisstjórnarinnar um aukna orkuöflun, öflugra flutnings- og dreifikerfi raforku og skilvirkari stjórnsýslu. Þessi áherslumál er að finna bæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar 21. desember 2024 og atvinnustefnu Íslands (Aðgerðaáætlun 2026–2027).
Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 26. nóvember.