13. nóvember 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áhrifa- og úthlutunarskýrsla um græna og sjálfbæra fjármögnun fyrir árið 2025

{image.Description}

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt  skýrslu fyrir árið 2025 þar sem gerð er grein fyrir nýtingu andvirðis og ávinningi af grænni og sjálfbærri skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs. Í skýrslunni er gerð grein fyrir því hvernig hluta af andvirði grænnar skuldabréfaútgáfu í evrum, sem gefin var út í mars 2024, og kynjaðs skuldabréfs í evrum, sem gefið var út í júní 2024, var ráðstafað á árinu 2025.

Ráðuneytið mun birta slíka skýrslu árlega þar til andvirðinu hefur verið ráðstafað að fullu og var fyrsta skýrslan gefin út í fyrra. Alls var 331,2 milljónum evra af andvirði skuldabréfaútgáfanna ráðstafað til fjármögnunar ríkisútgjalda á árinu 2025. Með útgáfunum var samtals aflað 800 milljóna evra, þar af 750 milljóna evra með grænu skuldabréfunum og 50 milljóna með kynjaða skuldabréfinu.

Ráðstöfun andvirðisins er í samræmi við viðmið sem sett eru fram í sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið gaf út í apríl 2023.

Var efnið hjálplegt?