13. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd birtir umsögn um tvö dómaraembætti við Landsrétt

{image.Description}

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað dómsmálaráðherra umsögn um umsækjendur um tvö dómaraembætti við Landsrétt. Annars vegar er um að ræða skipun og hins vegar setningu til 28. febrúar 2029.

Embættin voru auglýst laus til umsóknar 21. ágúst 2026.

Niðurstaða nefndarinnar er að Halldóra Þorsteinsdóttir sé fremst umsækjenda og því næst Björn L. Bergsson og Hulda Árnadóttir jafnsett, til að hljóta skipun og setningu í embætti dómara við Landsrétt

Dómnefndina skipuðu: Helgi I. Jónsson, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson og Reimar Pétursson.

Umsögnina má nálgast hér

Var efnið hjálplegt?