Föstudagspóstur 13. nóvember 2026
Heil og sæl,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, skrifaði um mikilvægi frjálsra viðskipta og áherslur sínar að greiða aðgang að erlendum mörkuðum í grein sem birt var í Morgunblaðinu þann 5. nóvember sl.
Berlín
Freetown
Helsinki
Kaupmannahöfn
Um 80 ungmenni frá Norðurlöndum komu saman á ráðstefnu í Kaupmannahöfn á vegum norrænu YATA-samtakanna þar sem fjallað var um öryggi á norðurslóðum, norrænt varnarsamstarf og áskoranir sem við blasa á sviði öryggis- og varnarmála. Pétur Ásgeirsson, sendiherra, flutti opnunarávarp ráðstefnnunar sem fór fram í Ráðhúsinu á Frederiksberg.
Sendiherra tók þátt í umræðufundi á vegum finnska sendiráðsins í vikunni ásamt Suzanne Innes-Stubb, forsetafrú Finnlands.
Lilongwe
Í síðasta föstudagspósti var fjallað um opnun nýs fæðingarspítala í Kakanhira í Mangochi-héraði og heimsókn tveggja alþingismanna sem eiga sæti í þróunarsamvinnunefnd. Sendiráðið í Lilongwe deilir nú myndbandi frá opnun spítalans.
Í þessari viku fór sendiráðsteymið okkar í vettvangsferð ásamt sendiráði Noregs og fulltrúum frá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í Mangochi-hérað til þess að kynna sér árangur og framvindu þróunarsamvinnuverkefna þar.
London
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í London, stýrði hringborðsumræðum um tengsl öryggis og atvinnulífs á norðurslóðum. Hringborðsumræðan var var haldin í tengslum við ráðstefnu BBA/Fjeldco og Arion banka um fjárfestingar á norðurslóðum.
Nýlega fór fram ein stærsta ráðstefna heims á sviði ferðaþjónustu, ráðstefnan World TRavel Market (WTM) í London. Þórdís Kolbrún, sendiherra, heimsótti íslenska sýningarsvæðið þar sem 29 ferðaþjónustufyrirtæki og markaðsstofur kynntu starfsemi sína og þjónustu.
Madríd
Sendiráð Norðurlanda tóku þátt í dagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar Silver Sea í San Luis í vikunni. Norræni viðburðurinn bar heitið Norræn ljós eða Luces Nórdicas þar sem fjallað var um norræna kvikmyndageirann og kvikmyndir.
Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Madríd, heimsótti Evrópsku hönnunarstofnunina í Madríd þar sem hann kynnti sér starsfemi skólans og framlag hans til menntunar á sviði hönnunar, tísku og annarra skapandi greina. Sendiherra ræddi við forstöðumann stofnunarinnar um möguleg samstarfsverkefni og tækifæri til að styrkja tengsl íslenskra og spænskra skapandi greina.
Nýja-Delí
Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, og Rachel John, viðskipta- og upplýsingafulltrúi sendiráðsins, sóttu ráðstefnu Alþjóðlega sólarorkubandalagsins, en Ísland gerðist nýlega aðildarríki að bandalaginu. Markmið bandalagsins er að vekja athygli á og styðja við sjálfbær orkuskipti í heiminum, þá sérstaklega nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa líkt og sólarorku.
Sendiráðsteymið okkar mætti svo einnig í fullum skrúða í vinnuna í tilefni Divali hátíðarinnar.
Ottawa
Sendinefnd skipuð fulltrúum norræna skapandi greina sóttu CINARS Biennale ráðstefnuna í Montréal í vikunni. Sendiráðsteymið okkar í Kanada studdi við heimsókn íslenskra fulltrúa á vegum Sviðslistamiðstöðvar Íslands.
Staðgenglar sendiherra úr sendiráðum Norðurlanda í Kanada fóru í sameiginlega vinnuferð til Winnipeg í síðustu viku, en ferðin var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni. Í heimsókninni funduðu fulltrúar sendiráðanna með stjórnmálafólki og embættismönnum hjá Manitoba-fylki og hjá borgaryfirvöldum. Einnig hittu þau fulltrúa atvinnulífsins með það að markmiði að styrkja tengsl og vekja athygli á viðskiptatækifærum á Norðurlöndum. Haldinn var umræðufundur um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum í Háskólanum í Manitoba. Winnipeg er þekkt fyrir að vera höfuðból Vestur-Íslendinga.
Osló
Sendiráð Íslands í Osló, í samstarfi við Reykjavíkur Akademíuna, stóð fyrir málstofu um norræna arfleifð og norrænar sjálfsmyndir þar sem fræðafólk kynnti rannsóknir sínar um m.a. norrænar bókmenntir. Ragnar Kristjánsson, sendiherra Íslands í Osló, ávarpaði gesti.
Sendiherra fundaði með forseta Stórþingsins, Masud Gharahkhani. Á fundinum ræddu þeir samskipti Íslands og Noregs og mikilvægi norræns samstarfs.
Í vikunni átti sér stað ráðherrafundur Norræna varnarsamstarfsins NORDEFCO og ráðstefna um öryggis- og varnarmál sem bar heitið International Sea Power Conference.
París
Róm
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sótti Róm heim ásamt viðskiptasendinefnd frá ítalska-íslenska viðskiptaráðinu. Tilgangur ferðarinnar var að efla tengsl við viðskiptaaðila á Ítalíu og kynnast viðskiptatækifærum á Ítalíu. Sendinefndin heimsótti m.a. stofnanir Sameinuðu þjóðanna í Róm. Guðmundur Árnason, sendiherra Íslands á Ítalíu, kynnti starfsemi sendiráðsins og fastanefndar Íslands gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar í borg.
Nýlega fóru frulltrúar norrænu fastanefndanna í Róm gagnvart Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme) og utanríkisráðuneyta Norðurlanda í sameiginlega vettvangsferð til Sýrlands og Líbanons. Tilgangurinn var að kanna ástand mannúðarmála og starfsemi stofnananna í ríkjunum tveimur. Guðmundur Árnason, sendiherra og fastafulltrúi, tók þátt í heimsókninni.
Stokkhólmur
Elín R. Sigurðardóttir, sendiherra okkar í Stokkhólmi, sótti sameiginlegan sendiherrafund Norðurlanda, Eystrasaltsríkja, Þýskalands og Póllands með forsætisráðherra Svíþjóðar, Ulf Kristersson. Á fundinum ræddu sendiherrar norrænt samstarf í öryggis- og varnarmálum og áframhaldandi stuðning við Úkraínu.
Sendiherra sótti einnig ráðstefnuna Nordic Compass í Gautaborg þar sem fulltrúar norræns ativnnulífs ræddu m.a. samkeppnishæfni og frumkvöðlastarfsemi á Norðurlöndum.