Frumvarp um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi afgreitt úr ríkisstjórn
Frumvarp dómsmálaráðherra um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi var afgreitt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Með frumvarpinu er stigið mikilvægt skref í framkvæmd stefnu stjórnvalda, Öruggara Ísland, sem kynnt var í byrjun árs. Markmiðið er að styrkja stöðu lögreglu og refsivörslukerfisins gagnvart skipulögðum brotahópum, herða refsingar og ráðast gegn þeim fjárhagslega ávinningi sem drífur starfsemi þeirra áfram.
Víðtækt samráð
Skipulögð brotastarfsemi hefur tekið verulegum breytingum á undanförnum árum. Greiningar lögreglu sýna að skipulagðir brotahópar hafa fest sig í sessi hér á landi, starfsemi þeirra er orðin alþjóðlegri og brotahóparnir sýna mikla aðlögunarhæfni. Þessu er nauðsynlegt að bregðast við með markvissari aðgerðum og tryggja að rannsóknarheimildir og löggjöf taki mið af breyttum veruleika.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og á lögreglulögum. Víðtækt samráð var haft við lögreglu og ákæruvald, tengslafulltrúa Íslands hjá Europol og Eurojust sem og fulltrúa annarra Norðurlanda. Aflað var umsagna frá bæði réttarfarsnefnd og refsiréttarnefnd.
Þyngri refsingar og skýrari skilgreining
Í frumvarpinu er að finna skýrari skilgreiningu á skipulögðum brotahópum og hámarksrefsing fyrir þátttöku í slíkri starfsemi hækkuð úr fjórum árum í átta ár. Hægt verður að þyngja refsingar ef brot tengist skipulagðri brotastarfsemi og ef barn eða ungmenni eru fengin til að taka þátt í refsiverðri háttsemi.
Helstu breytingar
- Hámarksrefsing fyrir þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi hækkuð í átta ár úr fjórum árum.
- Þyngri refsing ef börn eða ungmenni eru fengin til að taka þátt í refsiverðri háttsemi.
- Skýrari skilgreining á skipulögðum brotahópum.
- Heimild til að gera upptæk verðmæti sem ætla má að séu afrakstur refsiverðrar háttsemi án þess að sakfellt sé fyrir tiltekið brot.
- Hámark gæsluvarðhalds lengt úr tólf vikum í sex mánuði ef rannsókn beinist að broti sem getur varðað 10 ára fangelsi.
- Samráðsvettvangur lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Breytingum á lögum um meðferð sakamála er ætlað að auðvelda rannsókn á umfangsmiklum og flóknum sakamálum. Ef ákærandi metur til að mynda brýna hættu á sakarspjöllum er að finna heimild í frumvarpinu um að hann geti gripið til rannsóknaraðgerða áður en dómsúrskurðar er aflað. Kröfu um áframhald aðgerðar verður hins vegar að leggja fyrir héraðsdóm ekki seinna en 24 klukkustundum eftir að aðgerð hófst. Þá er lagt til að hámark gæsluvarðhalds verði lengt úr tólf vikum í sex mánuði ef rannsókn beinist að broti sem varðar tíu ára fangelsi eða lengur.
Skylda stjórnvalda að bregðast við
Með breytingum á lögreglulögum verður lögfest skýr heimild lögreglu til að nota löggæslumyndavélar á almannafæri. Henni verður jafnframt gert kleift að starfrækja sérstakan samráðsvettvang gegn skipulagðri brotastarfsemi þar sem stjórnvöld og einkaaðilar geta miðlað og skipst á nauðsynlegum upplýsingum.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segir það skyldu stjórnvalda að bregðast við þeirri ógn sem stafar af skipulagðri brotastarfsemi. „Reynslan frá nágrannalöndunum sýnir hversu hratt slík starfsemi getur vaxið. Við ætlum að grípa strax til markvissra aðgerða gegn skipulögðum brotahópum og koma í veg fyrir að þeir nái frekari fótfestu hér á landi.“