Minningardagur: Fræðsluátak og breytingar á umferðarlögum til að sporna við hraðakstri
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var haldinn í dag um land allt. Tilgangur dagsins er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Fjöldi fólks sótti minningarstundir sem haldnar voru á 17 stöðum um land allt. Við minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi fluttu Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ávörp og Haraldur Már Haraldsson sagði reynslusögu sína en hann varð ungur að árum valdur að banaslysi.
Sjónum minningardagsins var að þessu sinni beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks.
Í umfjöllun um minningardaginn hefur komið fram að ungir ökumenn eru hlutfallslega talsvert líklegri til að lenda í slysum og óhöppum en þeir eldri. Á hinn bóginn staðfesta gögn frá Samgöngustofu að ungir ökumenn hafi bætt sig á síðustu árum og standi sig almennt betur í umferðinni en áður. Þannig hefur slysum af völdum ungra ökumanna fækkað talsvert á síðustu 20 árum. Einnig hefur slösuðum ungmennum í bifreið einnig fækkað mikið.
Mjög alvarlegar undantekningar eru frá þessari almennu þróun. Síðustu mánuði og misseri hafa orðið hræðileg slys sem rekja má til hraðaksturs eða annarrar áhættuhegðunar ungra ökumanna. Samkvæmt gögnum Lögreglunnar eru skýr merki um að slík áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum.
Í ávarpi á minningardeginum sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra að stjórnvöld hygðust mæta þessari þróun með markvissum aðgerðum, þ.á m. breytingum á umferðarlögum og fræðsluátaki í samvinnu við ungmenni, foreldra og skólasamfélagið.
Minningarstundir á sautján stöðum um land allt
Minningarstundir voru haldnar á eftirtöldum 17 stöðum um allt land: Akureyri, Borgarnesi, Grundarfirði, Hnífsdal/Ísafirði, Hólmavík, Kirkjubæjarklaustri, Kjalarnesi, Kópavogi, Ólafsfirði, Ólafsvík, Patreksfirði, Reykjanesbæ, Reykjavík, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Vopnafirði. Þær voru haldnar í samvinnu við einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðila. Unglingadeildir björgunarsveitanna gegndu lykilhlutverki við skipulagningu viðburða.
Í Reykjavík var athöfn haldin venju samkvæmt við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fluttu ávörp. Haraldur Már Haraldsson var ræðumaður dagsins og sagði reynslusögu sína en ungur að árum varð hann sökum hraðaksturs valdur að banaslysi æskuvinar síns. Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar stýrði athöfninni.
Við athöfnina flutti MH-kórinn einkennislag dagsins, I Think of Angels. KK samdi lagið til minningar um systur sína, sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið í flutningi KK og Ellenar, systur hans, verður leikið samtímis á öllum útvarpsstöðvum kl. 14 á minningardaginn.
Ljóst er að umferðarslys hafa víðtæk áhrif í samfélaginu og snerta landsmenn alla með einum eða öðrum hætti. Í nýrri könnun Samgöngustofu kom m.a. fram að u.þ.b. fjórðungur Íslendinga, rúmlega 26%, hafi misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þetta er í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.