17. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Samið við Háskóla Íslands um íslenskupróf vegna umsóknar um ríkisborgararétt

{image.Description}

Dómsmálaráðuneytið og Háskóli Íslands hafa undirritað samning um íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt. Samningurinn er til fjögurra ára og mun hugvísindasvið skólans hafa umsjón með prófunum.

Samkvæmt samningnum leggur Háskóli Íslands til starfsfólk, sérfræðiþekkingu, aðstöðu og prófgögn. Próf skulu haldin minnst tvisvar á hverju almanaksári og verður fyrirkomulag þeirra auglýst með fyrirvara.

Opnað var fyrir skráningu síðdegis í gær fyrir próf sem haldið verður 12. desember. Loka þurfti skráningu tveimur tímum seinna þegar 42 höfðu skráð sig.  Fleiri próf verða á næsta ári og þau auglýst í janúar.

Nánari upplýsingar má finna hér.

Samkvæmt reglugerð sem ráðuneytið setur verður próftökugjald 50 þúsund krónur. Gjaldinu er ætlað að standa straum af fyrirlögn, yfirferð og þróun prófa og rennur óskipt til Háskóla Íslands.

Ráðuneytið greiðir háskólanum 7.925.000 í upphafskostnað vegna verkefnisins í samræmi við fyrirliggjandi kostnaðaráætlun. Þetta felur meðal annars í sér að tryggja þjálfun tilvonandi prófdómara og að prófefni sé í samræmi við hæfniviðmið.

Miðstöð menntunar -og skólaþjónustu (MMS) hafði áður umsjón með verkefninu en í byrjun síðasta árs sagði stofnunin upp þeim samningi þar sem hún taldi verkefnið ekki rúmast innan hlutverks hennar.  Ákveðið var að MMS myndi sjá um framkvæmd íslenskuprófa á árinu 2025 á meðan unnið væri að nýju fyrirkomulagi.

„Íslenskukunnátta er lykill að virkri þátttöku í samfélaginu. Við eigum að gera skýrar kröfur um íslenskukunnáttu þeirra sem vilja setjast hér að til frambúðar. Hins vegar, eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum, verða stjórnvöld um leið  að tryggja raunhæf tækifæri til íslenskukennslu. Þetta tvennt helst í hendur og um það þarf að eiga samtal við menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið,“  segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

 

Var efnið hjálplegt?