Stefnt að ríflega þreföldun fjármagns til Heilbrigðisvísindasjóðs
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hyggst stórauka fjármagn til styrkveitinga úr Heilbrigðisvísindasjóði á næstu þremur árum þannig að heildarfjárhæð til úthlutunar verði 200 milljónir króna árið 2029. Markmiðið er að efla vísindarannsóknir á heilbrigðissviði og styðja þannig þekkingarsköpun og framþróun heilbrigðiskerfisins.
Heilbrigðisvísindasjóður var stofnaður árið 2024 og hefur það hlutverk að styðja rannsóknir sem styrkja vísindalega þekkingu og stuðla að framþróun heilbrigðiskerfisins. Fjárheimildir til sjóðsins námu 60 milljónum króna árin 2025 og 2026 og var auglýst í fyrsta sinn eftir umsóknum í sjóðinn í júní síðastliðnum.
Stigvaxandi hækkun fjárheimilda er ætlað að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu sjóðsins og öflugri rannsóknir á heilbrigðissviði. Gert ráð fyrir að fjárheimild sjóðsins verði aukin í 100 milljónir króna árið 2027, 150 milljónir árið 2028 og 200 milljónir árið 2029.