Undanþágur við útreikning fjárframlaga til háskóla vegna nemenda utan EES
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur birt breytingar á reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, í Stjórnartíðindum. Samkvæmt breytingunum verður að jafnaði ekki lengur tekið tillit til lokinna námseininga og brautskráninga nemenda utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) við útreikning fjárframlaga vegna kennslu. Takmörkunin kemur fyrst til framkvæmda vegna lokinna eininga og brautskráninga sem falla til á háskólaárinu 2027–2028 eða síðar.
Þá eru skilgreindar undanþágur frá þessum takmörkunum. Undanþágurnar ná meðal annars til nemenda með ótímabundið dvalarleyfi, tiltekinna fjölskyldumeðlima íslenskra ríkisborgara og EES- eða EFTA-borgara, einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar, nemenda í alþjóðlegu háskólasamstarfi, nemenda sem stunda nám á grundvelli alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands og doktorsnema.
Sérstök undanþága nær jafnframt til heilbrigðisstarfsmanna sem sinna beinni meðferð eða umönnun sjúklinga og starfsfólks leik- og grunnskóla sem sinnir kennslu, uppeldi eða umönnun barna, að uppfylltum skilyrðum um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku og diplómanám í íslensku sem öðru máli á háskólastigi. Með undanþágunni er komið til móts við sjónarmið um mikilvægi íslenskukunnáttu starfsfólks í heilbrigðis- og menntakerfinu
Auk þess verður háskólunum veitt sérstakt svigrúm til að fella niður skólagjöld nemenda utan EES og telja loknar einingar og brautskráningar þeirra með við útreikning fjárframlaga. Háskólarnir setja sjálfir nánari reglur um úthlutun og gildistíma niðurfellinganna.
Áfram verður tekið tillit til lokinna eininga og brautskráninga nemenda sem hófu nám á tiltekinni námsleið fyrir háskólaárið 2027–2028, enda haldi þeir rétti til áframhaldandi náms á þeirri námsleið samkvæmt reglum viðkomandi háskóla um námsframvindu.
Ráðuneytið mun fylgjast með áhrifum breytinganna og meta hvort þörf sé á frekari aðgerðum þegar reynsla af framkvæmdinni liggur fyrir.