Framkvæmdastjóri OECD í heimsókn á Íslandi
Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sótti Ísland heim dagana 15.-17. nóvember. Cormann var staddur hér á landi í tengslum við Heimsþing kvenleiðtoga (e. Reykjavík Global Forum) þar sem hann flutti erindi og tók þátt í nokkrum viðburðum.
Cormann átti einnig fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra þar sem þau ræddu þróun utanríkisviðskipta og efnahagsmála og helstu viðfangsefni stofnunarinnar um þessar mundir. Ræddu þau sérstaklega um úrbætur sem úkraínsk stjórnvöld hafa náð fram með innleiðingu staðla OECD og nú síðast með aðild sinni að samningi stofnunarinnar gegn mútugreiðslum.
Þá sat Cormann hádegisverðarfund með spretthópi sem utanríkisráðherra skipaði í október síðastliðnum og ætlað er að fara yfir þróun mála innan alþjóðaviðskiptakerfisins, stöðu Íslands innan þess og hvaða tækifæri og áskoranir kunni að liggja fyrir í því sambandi. Á fundinum fór Cormann yfir stöðu alþjóðaviðskipta og hvað Ísland gæti að mati stofnunarinnar gert til að bregðast við þeirri stöðu og bæta viðskiptaumhverfi fyrirtækja.
Þá fundaði hann með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Á fundinum ræddu þau atvinnustefnu Íslands og hvernig Ísland geti haldið áfram að bæta samkeppnishæfni með einföldun regluverks og stjórnsýsluferla. Einnig hitti Cormann Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og ræddu þeir meðal annars stöðu og horfur í efnahagsmálum innanlands sem og á heimsvísu og innan alþjóðlega viðskiptakerfisins.