Tæplega 40 milljóna króna styrkur til Bjarkarhlíðar
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur gert styrksamkomulag við Bjarkarhlíð um 39,4 milljóna króna framlag til starfseminnar á árinu 2027.
Markmið samningsins er að styðja við starfsemi Bjarkarhlíðar sem veitir þolendum ofbeldis, 18 ára og eldri, ráðgjöf og stuðning í kjölfar ofbeldis. Starfsemin byggir á áfallamiðaðri nálgun, virðingu og þverfaglegu samstarfi en unnið er samkvæmt hugmyndafræði Family Justice Center þar sem áhersla er lögð á að þolendur ofbeldis geti sótt þjónustu í kjölfar ofbeldis á einum stað, þeim að kostnaðarlausu.
Í Bjarkarhlíð er meðal annars boðið upp á lögfræðiráðgjöf, ráðgjöf frá lögreglu sem hefur þar fasta viðveru, stuðningshópa og aðstoð við að tengjast félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og öðrum stuðningsúrræðum. Í Bjarkarhlíð er jafnframt veittur stuðningur og ráðgjöf til þolenda mansals.
„Bjarkarhlíð gegnir mikilvægu hlutverki og þar hefur byggst upp mikil reynsla og þekking á þjónustu við þolendur ofbeldis. Með þessum stuðningi viljum við tryggja áframhaldandi öfluga starfsemi Bjarkarhlíðar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Bjarkarhlíð leggur einnig áherslu á fræðslu og forvarnir ásamt því að efla samstarf þeirra aðila sem koma að málefnum þolenda ofbeldis.