Málþing: Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna – árangur og næstu skref
Hvað hefur áunnist í aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og hver eru næstu skref? Þessar spurningar verða í brennidepli á málþingi aðgerðahóps stjórnvalda fimmtudaginn 10. desember 2026 kl. 10:00–15:30 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Haustið 2024 settu íslensk stjórnvöld af stað 25 aðgerðir til að sporna gegn auknu og alvarlegra ofbeldi meðal barna og gegn börnum. Nú þegar tveggja ára innleiðingartímabili lýkur verður farið yfir árangur aðgerðanna, helstu afurðir kynntar og rætt hvernig nýta megi reynsluna og samstarfið áfram.
Á málþinginu verður rýnt í aðgerðirnar og í fyrirliggjandi gögn og rannsóknir. Verklag í grunnskólum og frístundastarfi vegna krefjandi hegðunar barna verður kynnt ásamt verkfærakistu fagfólks þegar upp kemur einelti, kynbundin/kynferðisleg áreitni og ofbeldi (EKKÓ-mál). Húsið opnar kl. 9:30 með móttöku gesta og morgunkaffi. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Málþinginu verður jafnframt streymt.
Aðgerðirnar byggjast á heildstæðri nálgun og samstarfi þvert á kerfi, í anda farsældarlaga. Málþingið er ætlað fagfólki sem hefur tekið þátt í framkvæmd aðgerðanna og öðrum sem geta nýtt afrakstur þeirra í starfi.
Þar á meðal eru tengiliðir farsældar og verkefnastjórar farsældarráða, starfsfólk barnaverndarþjónustu, fulltrúar svæðisbundins samráðs um afbrotavarnir og samfélagslöggæslu, svæðisfulltrúar íþróttahéraða, starfsfólk skólaþjónustu og fræðslustjórar sveitarfélaga og starfsfólk og stjórnendur leik-, grunn- og framhaldsskóla. Málþingið er einnig ætlað náms- og starfsráðgjöfum, forvarnafulltrúum sveitarfélaga og framhaldsskóla, starfsfólki frístundastarfs og félagsmiðstöðva og starfsfólki heilbrigðisþjónustu sem sinnir börnum og ungmennum, þá sérstaklega skólaheilsugæslu og ung- og smábarnavernd.
Að málþinginu standa mennta- og barnamálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið.
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Skráning er opin til og með 6. desember. Sætafjöldi er takmarkaður og áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Saman tryggjum við öryggi barna!