Eftirlits- og viðbragðsgeta innanlands efld
Stjórnvöld ætla að efla viðbragðs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslu Íslands og ríkislögreglustjóra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra undirrituðu samninga þess efnis við Landhelgisgæslu Íslands og embætti ríkislögreglustjóra í morgun. Undirritunin fór fram í varðskipinu Þór að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
„Nýjar og vaxandi áskoranir kalla á aukinn viðbúnað og eftirlit. Ráðuneytin eiga nú þegar í nánu og þéttu samstarfi þegar kemur að öryggis- og varnarmálum og það ætlum við nú að styrkja enn frekar,“ segir Þorgerður Katrín.
„Öflugir borgarlegir innviðir eru lykilatriði í vörnum Íslands. Þessi samningar endurspegla þá samstöðu sem ríkir um að efla öryggi og varnir okkar,“ segir Þorbjörg.
Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja eftirlitsgetu með ómönnuðum loftförum og viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra með kaupum á sérútbúnum bifreiðum.
„Við þurfum að tryggja að þær stofnanir sem bera ábyrgð á viðbúnaði innanlands hafi bæði búnað og getu sem þarf til að mæta nýjum og breyttum áskorunum,“ segir Þorbjörg.
„Miðað við þróun heimsmálanna, og eins og nýleg dæmi sanna, er ekki í boði að sitja eftir þegar kemur að þessum málum,“ segir Þorgerður Katrín.
Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands fór fundur þjóðaröryggisráðs fram í varðskipinu Þór. Þar gafst ráðinu tækifæri til að kynna sér starfsemi og verkefni landhelgisgæslunnar og framtíðarþróun.