27. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 27. nóvember 2026

Heil og sæl,

Utanríkisráðuneytið í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sem og atvinnuvegaráðuneytið stóð í gær fyrir vinnustofu um BBNJ-samninginn svokallaða (e. Biodiversity beyond national jurisdiction), um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja. BBNJ-samningurinn er nýr samningur undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og var hann samþykktur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þann 19. júní 2023. Ísland fullgilti samninginn formlega í desember í fyrra.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti ávarp fyrir hönd Norðurlandanna á opnum fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um Úkraínu á mánudag. Í ávarpinu lagði Martin m.a. áherslu á alvarlegt mannúðarástand í Úkraínu, stigmögnun árása Rússlands og áhrif ólöglegs árásarstríðs Rússa í Úkraínu á fæðuöryggi á heimsvísu. Þann sama dag var haldinn viðburður í tilefni alþjóðadags samstöðu með palestínsku þjóðinni og tók ráðuneytisstjóri þar þátt í fyrir Íslands hönd. Einnig fundaði hann með Michael Waltz, fastafulltrúa Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum, sem og Amina Mohammed, varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Árlegur fundur utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja var haldinn í Osló í lok síðustu viku. Til umræðu var alþjóðasamvinna í breyttum heimi, sameiginlegar áskoranir og ekki síst tækifæri til aukinnar samvinnu á sviði gervigreindar, fjárfestinga og viðskipta. Logi Einarsson, ráðherra menningar, nýsköpunar og norrænnar samvinnu, tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Logi átti þar m.a. tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Malaví og Úganda og ávarpaði einnig viðburð á vegum sendiráðs Íslands í Osló, norsk-íslenska viðskiptaráðsins og Íslandsstofu, eins og greint var frá í síðasta föstudagspósti.

Annar fundur embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins í formennskutíð Íslands var haldinn í höfuðstöðvum ráðsins í Stokkhólmi í lok síðustu viku þar sem fulltrúar frá Norðurlöndunum fimm, Eystrasaltsríkjunum þremur, Póllandi, Þýskalandi og Evrópusambandinu komu saman. Í síðasta föstudagspósti var einmitt sagt frá málstofu sem Sendiráð Íslands í Stokkhólmi stóð fyrir í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu. Árni Þór Sigurðsson, formaður embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins, hélt svo til Helsinki í vikunni þar sem hann tók þátt í morgunverðarviðburði á vegum sendiráðs Íslands í Helsinki þar sem hann ræddi áherslumál formennsku Íslands í ráðinu.

Sendiskrifstofur Íslands hafa á undanförnum dögum verið að deila samfélagsmiðlaefni tengdu 16 daga átaki UN Women gegn kynbundnu ofbeldi sem hófst miðvikudaginn 25. nóvember sl. Átakinu lýkur 10. desember á alþjóðlegum degi mannréttinda.

Tókýó

Hreinn Pálsson, sendiherra okkar í Tókýó, fýraði upp í grillinu og framreiddi lambakjötsveislu fyrir tökulið sjónvarpsstöðvarinnar NHK E-TV, en fjallað var um norræna matargerð, íslenskar gæðavörur og störf íslenska sendiráðsins í Japan í sjónvarpsþætti í vikunni.

Berlín

Sendiráð Norðurlanda skipulögðu sameiginlegt hlaup í Berlín til að vekja athygli á upphafsdegi 16 daga alþjóðlegs átaks UN Women gegn kynbundnu ofbeldi.

Dagur B. Eggertsson og Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismenn, sóttu Berlín heim í vikunni til þess að sækja ársfund NATO-þingsins og studdi sendiráðið við heimsókn þeirra.

Íslenska tónlistarkonan, tónskáldið og Óskarsverðlaunahafinn (!), Hildur Guðnadóttir, var heiðursgestur í vikunni á sérstakri sýningu á tónleikakvikmyndinni Under sem sendiráðs Íslands stóð fyrir í Fellashaus, sameiginlegri byggingu sendiráða Norðurlanda í Berlín. Myndin fjallar um tónleika sem haldnir voru í sérstæðu neðansjávarhúsinu Under í Noregi, fimm metrum undir sjávarmáli, þar sem tónlist, arkitektúr, ljós og haf fléttast saman. Að sýningu lokinni ræddi Auðunn Atlason, sendiherra okkar í Berlín, við Hildi um gerð myndarinnar og önnur verkefni sem hún er að fást við þessa dagana. Deutsche Grammophon var meðskipuleggjandi viðburðarins.

Það er vert að minnast á það að Sendiráð Íslands í París stóð einnig fyrir sérstakri sýningu á myndinni í október í samstarfi við sendiráð Noregs í París, framleiðendur myndarinnar og frönsku sjónvarpsstöðina ARTE.

Kampala

Það var allt appelsínugult í Kampala við upphaf 16 daga alþjóðlegs átaks UN Women gegn kynbundnu ofbeldi. Sendiráðið tók þátt í tveimur opnunarviðburðum átaksins. Annars vegar tók sendiráðsteymið okkar þátt í viðburðinum Ride for Change þar sem jafn réttur allra til frjálsra og öruggra ferða var í brennidepli. Hins vegar tók sendiráðið þátt í viðburði samtakanna FIDA Uganda þar sem Katrín Einarsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala, lagði áherslu á stefnur íslenskra stjórnvalda í jafnréttismálum og íslensk þróunarsamvinnuverkefni í Úganda sem styðja við aukinn kynjajöfnuð.

Varsjá

Friðrik Jónsson, sendiherra okkar í Varsjá, tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um fæðuöryggi í Úkraínu sem fram fór í Kænugarði í dag. Á ráðstefnunni tilkynnti sendiherra áform íslenskra stjórnvalda um að styðja við matvælaverkefniið Food from Ukraine sem hefur það markmið að stuðla að útflutningi matvæla frá Úkraínu til ríkja sem glíma við mikið fæðuóöryggi í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna.

Á meðan sendiherra var í Kænugarði heimsótti hann einnig stoðtækjamiðstöð sem opnuð var í fyrra. Stoðtækjamiðstöðin er sérstakt endurhæfingarverkefni í Úkraínu á vegum Emblu Medical, móðurfélags Össurar, samtakanna Future for Ukraine, og íslenskra stjórnvalda.

Stokkhólmur

Elín R. Sigurðardóttir, sendiherra okkar í Stokkhólmi, tók þátt í pallborðsumræðum ásamt sendiherra Noregs um EES-samstarfið og samskipti EES EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins. Pallborðsumræðurnar voru skipulagðar af utanríkismálafélaginu í Uppsala (e. Uppsala Foreign Affairs Association).

Sendiráðið stóð einnig fyrir morgunverðarviðburði í samstarfi við UN Women í Svíþjóð í tengslum við upphaf 16 daga alþjóðlegs átaks UN Women gegn kynbundnu ofbeldi.

Ottawa

Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra Íslands í Ottawa í Kanada, ferðaðist til Quebec-fylkis ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda til þess að ræða við fulltrúa fylkisstjórnar Quebec, fulltrúa atvinnulífsins og háskólasamfélagsins í fylkinu. Markmið heimsóknarinnar var að styrkja tengsl Norðurlanda við yfirvöld, atvinnulíf og akademíuna í Quebec-fylki og stuðla að auknu samstarfi í framtíðinni.

Freetown

Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Freetown í Síerra Leóne, tók þátt í opnunarviðburði 16 daga alþjóðlega átaksins gegn kynbundnu ofbeldi í Freetown í vikunni. Ísland styður við aðgerðir í þágu kynjajafnréttis þar í landi í samstarfi við stjórnvöld í Síerra Leóne í gegnum þróunarsamvinnuverkefni Íslands.

Svo tók Karl Fannar Sævarsson, varamaður forstöðumanns, þátt í fundi með kjörstjórn Síerra Leóne og öðrum sendiráðum og samstarfsaðilum í vikunni til þess að ræða undirbúning kosninga í Síerra Leóne á næsta ári. Ísland er eindreginn málsvari lýðræðislegra gilda og tekur því sendiráðið þátt í samráði sem miðar að því að stuðla að friðsælum og löglegum kosningum í landinu, en lýðræðið þar í landi þykir enn brothætt eftir að borgarastyrjöld lauk þar fyrir um 20 árum.

Nýja-Delí

Sendiráðið okkar í Nýju-Delí á Indlandi stóð fyrir sýningu á heimildarmyndinni Dagurinn sem Ísland stöðvaðist um Kvennafrídaginn árið 1975. Myndin var sýnd í Mumbai í vikunni í tengslum við SamaBhav kvikmyndahátíðarinnar, en hátíðin skipulögð af MAVA samtökum karla sem berjast kynbundnu ofbeldi. Tinna Sveinsdóttir, staðgengill sendiherra, flutti opnunarávarp á sýningunni.

Helsinki

Líkt og áður hefur komið fram stóð sendiráðsteymið okkar í Finnlandi fyrir viðburði í vikunni um formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu. Þar að auki tóku sendiherra okkar í Helsinki, Nína Björk Jónsdóttir, og Íslandsstofa vel á móti sendinefnd íslenskra frumkvöðla, fjárfesta og annarra aðila úr íslenska nýsköpunargeiranum sem sóttu Helsinki heim í tengslum við nýsköpunarvikuna Slush 2026.

Sendiráðsteymið okkar tók líka þátt í málþingi um norrænar lausnir í friðarumleitunum sem haldið var í húsakynnum finnska þingsins í vikunni. Auður Edda Jökulsdóttir, sérstakur erindreki Íslands um jafnréttismál, tók þátt í pallborðsumræðum á málþinginu, en málþingið var haldið í tengslum við ársfund tengslanets kvenna í friðarumleitunum sem fór fram í Helsinki.

Lilongwe

Erla Hlín Hjálmarsdóttir, varamaður forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongwe í Malaví, flutti ávarp og tók þátt í pallborðsumræðum á viðburði í tengslum við 16 daga alþjóðlegt átak UN Women gegn kynbundnu ofbeldi sem haldinn var í Lilongwe. Á viðburðinum ræddu fulltrúar stjórnvalda í Malaví, fulltrúar alþjóðastofnana og fulltrúar sendiráða m.a. um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og hjónaböndum barna.

Madríd

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra, afhendi Josep Lluís Serrano Pentinat, biskupi, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Andorra með aðsetur í Madríd.

Kaupmannahöfn

Það var margt um manninn í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn í gær þegar sýning Steinunnar Helgu Sigurðardóttur, Livets Tråd / Threads of Life var opnuð. Pétur Ásgeirsson, sendiherrra, og Mikael Ralf Larsen, bæjarstjóri Lejre, heimabæjar Helgu, ávörpuðu gesti. Sýningin stendur til 1. febrúar 2027.

Í lok síðustu viku stóð sendiráðið fyrir viðburði í tilefni nýrrar danskrar endurútgáfu á Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, en bókin kemur nú út í nýrri og ríkulega myndskreyttri útgáfu. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við danska forlagið Gads.

Washington D.C.

Stór hópur nemenda við Verzlunarskóla Íslands komu í morgunkaffi í sendiráðsbústaðinn í Washington D.C. og ræddu við Svanhildi Hólm Valsdóttur, sendiherra, um störf sendiráðsins og utanríkisþjónustunnar.

Reglubundinn samráðsfundur yfirmanna pólitískra málefna í utanríkisráðuneytum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna með embættismönnum úr bandaríska utanríkisráðuneytinu var haldinn í Washington í síðustu viku. Samstarfsvettvangurinn kallast EPINE eða Enhanced Partnership in Northern Europe og veitir mikilvægt tækifæri til að ræða samvinnu ríkjanna um alþjóða- og öryggismál. Anna Hjartadóttir, skrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna, sótti fundinn.

París

Sendiráðið okkar í París tók vel á móti fyrsta árs íslenskunemum við Sorbonne-háskólann síðastliðinn föstudag. Nemendurnir fengu kynningu um íslenska menningu og starfsemi utanríkisþjónustu Íslands.
Var efnið hjálplegt?