12. júní 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áætlun um innleiðingu EES-gerða á fjármálamarkaði birt í samráðsgátt

{image.Description}
Hari

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áætlun um innleiðingu EES-gerða á fjármálamarkaði.

Stór hluti af löggjöf á sviði fjármálamarkaðar á rætur að rekja til tilskipana og reglugerða sem Evrópusambandið samþykkir og eru svo teknar upp í EES-samninginn. Í áætluninni er greint frá því hvernig ráðuneytið áformar að forgangsraða vinnu við innleiðingu gerða sem fyrirséð er að verði teknar upp í EES-samninginn og á eftir að leiða í landslög. Gerðirnar varða meðal annars varfærniskröfur til banka, græn skuldabréf, ökutækjatryggingar og aðgang að upplýsingum um fjármálamarkað.

Frestur til að senda umsagnir um áætlunina er til og með 20. ágúst næstkomandi.

Var efnið hjálplegt?