2. nóvember 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

{image.Description}
Hari

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 2. nóvember.   Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 59 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 4.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 445 kr. fyrir hvern lítra.    Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 4.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 59.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 45.
  • Sölutilboð yfir jafnvægisverði var 1.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 563.487 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 2.801.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 484.752 lítrar að andvirði 145.425.600,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 13 talsins og fá 69% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Af kauptilboðum er 1 sem fær úthlutun úr forgangspotti nýliða.

 

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum.   Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.

KauptilboðSölutilboð
Magn ltr.Kr./ltrKr./ltrMagn ltr.
50.000445
50.000370
100.000350
50.000320
50.000310250139.752
100.00030527045.000
300.000300=300300.000
50.00029735078.735
50.000295
100.000294
520.000290
200.000285
50.000284
801.000280
50.000276
50.000275
50.000272
180.000270

Magn viðskipta
484.752

Tilboð alls
2.801.000

Tilboð alls
563.487

Úr reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022:

Jafnvægisverð: Það verð sem myndast þegar framboðið magn er jafnt og eftirspurt magn eða lægsta verð sem jafnvægismagn getur verið selt og keypt á.

Greiðslumarki sem boðið er til sölu á hærra verði en jafnvægisverði skal vísað frá markaði og á sama hátt kauptilboðum sem eru lægri en jafnvægisverð.

Öll viðskipti sem fara fram á viðkomandi markaðsdegi skulu fara fram á því jafnvægisverði sem markaðurinn gefur í það sinn eða hámarksverði.

Var efnið hjálplegt?