Hoppa yfir valmynd
2. ágúst 2017 Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið heimilar undanþágu fyrir ferjuna Akranes

Frá Landeyjahöfn - mynd

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur fellt úr gildi þá ákvörðun Samgöngustofu að veita ekki undanþágu fyrir siglingar ferjunnar Akraness á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Lagt er fyrir Samgöngustofu að fallast á umsókn Eimskips um að nota ferjuna til þessara siglinga dagana 4. og 7. ágúst næstkomandi.

Tildrög málsins eru þau að Eimskip sótti 17. júlí síðstliðinn til Samgöngustofu um heimild til að nota ferjuna Akranes til siglinga milli lands og Eyja 4. og 7. ágúst en Samgöngstofa hafnaði erindinu. Í framhaldi af þessu kærði Vestmannaeyjabær ákvörðun Samgöngustofu til ráðuneytisins. Við meðferð málsins tilkynnti Eimskip ráðuneytinu að það styddi Vestmannaeyjabæ varðandi kæruna.

Í rökstuðningi sínum í kærunni segir Vestmannaeyjabær að ferjan Akranes hafi fengið tímabundna heimild Samgöngustofu til að flytja farþega milli Reykjavíkur og Akraness með ferjunni Akranesi. Hafsvæði á þeirri siglingaleið sé flokkað sem hafsvæði C og hafsvæðið milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja sé einnig hafsvæði C. Telur Vestmannaeyjabær að gefa beri leyfi til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar með sömu rökum og skilyrðum og gildi um leyfi ferjunnar Akraness til siglinga milli Reykjavíkur og Akraness. Ákvörðun Samgöngustofu um að synja umsókn Eimskips um umræddar siglingar sé brot á jafnræðisreglu, lögmætisreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.

Í rökstuðningi sínum segir Samgöngustofa meðal annars að beiðni Eimkips sé hafnað af þeirri ástæðu að ekki lægi fyrir að skipið uppfyllti reglur um háhraðafarþegaför. Forsendur fyrir tímabundinni heimild í tilraunaskyni hafi aðeins gert ráð fyrir siglingu milli Reykjavíkur og Akraness við hagstæð skilyrði en ekki siglingum milli lands og Eyja um verslunarmannahelgina þar sem álag sé í hámarki. Því séu ekki forsendur til að víkka tilraunaverkefnið út á aðra siglingaleið við aðrar aðstæður og allt aðrar forsendur.

Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að Samgöngustofa hafi ekki sýnt fram á að aðstæður til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar séu aðrar en á milli Reykjavíkur og Akraness. Þar sem ferjan Akranes hafi nú þegar tímabundna heimild frá Samgöngustofu til siglinga milli Reykjavíkur og Akraness sé ekkert fram komið að mati ráðuneytisins sem réttlætt geti að synjað verði um heimild til siglinga ferjunnar á sambærilegu hafsvæði milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar enda séu bæði hafsvæðin í flokki C. Það eitt að álag sé í hámarki á tilgreindu tímabili og að um sé að ræða stærstu ferðahelgi ársins þar sem ætla megi að mikill þrýstingur sé á skipstjórnarmenn að halda áætlun séu ekki sjónarmið sem áhrif geti haft á niðurstöðu málsins enda sé öllum viðeigandi öryggiskröfum fullnægt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum