Aðgerðaáðætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun til ársins 2030. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur hvatt þjóðir heims til að setja fram slíkar áætlanir, ekki síst vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar í hópi þeirra greinast með heilabilun á næstu árum og áratugum.
Þetta er önnur aðgerðaáætlunin um þjónustu við einstaklinga með heilabilun hér á landi. Sú fyrsta var sett fram árið 2019 og gilti til ársins 2025. Þar voru settar fram 48 aðgerðir, allar með mælanleg markmið sem unnið hefur verið eftir og hefur meiri hluti þeirra náð fram að ganga.
Vinna við uppfærslu gildandi aðgerðaáætlunar hófst síðla árs 2025, í samvinnu sérfræðings heilbrigðisráðuneytisins, Jóns Snædals öldrunarlæknis og Guðlaugs Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Azheimersamtakanna. Áætlunin var birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 9. júní síðastliðinn. Alls bárust 15 umsagnir og hefur áætlunin verið uppfærð með hliðsjón af þeim. Umsagnaraðilum er þakkað fyrir góðar og gagnlegar ábendingar og tillögur.
Um aðgerðaáætlunina
Nýja aðgerðaáætlunin sem hér er birt byggir á fyrri áætlun en tekur mið af þeim áherslubreytingum sem orðið hafa á síðustu árum í málefnum og þjónustu við einstaklinga með heilabilun. Rík áhersla er nú lögð á forvarnir og snemmtæka íhlutun. Í áætluninni eru skilgreindar 27 tímasettar aðgerðir og tilgreint hverjir beri ábyrgð á framkvæmd þeirra. Aðgerðirnar eru á eftirtöldum sex sviðum:
- Forvarnir
- Snemmtæk íhlutun
- Fjölgun virkni-, dagþjálfunar- og hvíldarúrræða
- Lyfjameðferð
- Aukin þekking á heilabilun í samfélaginu
- Aðgerðir sem ólokið er frá síðustu aðgerðaáætlun
Gagnagrunnur á landsvísu
Unnið er að því að koma á fót gagnagrunni á landsvísu um einstaklinga með heilabilun. Slíkur grunnur er mikilvægur til að tryggja áreiðanlegar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem greinst hafa með heilabilun hér á landi. Hann er einnig nauðsynlegur vegna gæðaeftirlits og að auki munu rannsakendur hafa aðgang að grunninum að uppfylltum skilyrðum og leyfum. Vinna við gerð grunnsins er komin vel á veg.