21. september 2026 /
Innviðaráðuneytið

Áform um breytingar á umferðarlögum í samráðsgátt

{image.Description}

Áform um breytingar á gildandi umferðarlögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í áformum eru m.a. kynntar breytingar til að bæta stöðu almennings gagnvart gjaldheimtu á bílastæðum (stöðureitum) og tryggja réttindi handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til að leggja í gjaldskylt stæði án sérstakrar greiðslur.

Helstu breytingar sem kynntar eru í áformunum eru:

  • Bílastæði (stöðureitir) og gjaldheimta. Áformað er að færa ákvæði laganna um stöðureiti til nútímalegra horfs þannig að ákvæðin taki einnig til gjaldheimtu af hálfu einkaaðila. Tilgangurinn breytinganna er að bæta stöðu almennings vegna viðskiptahátta rekstraraðila gjaldskyldra bifreiðastæða.
  • Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Réttur handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til þess að leggja ökutæki í gjaldskylt bifreiðastæði (stöðureit) án sérstakrar greiðslu er ekki í öllum tilvikum virtur, sumpart vegna aukinnar sjálfvirkni í gjaldheimtu. Til að koma í veg fyrir slíkt er áformað að veita skýrari heimild fyrir miðlun upplýsinga um handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða úr opinberum skrám.
  • Hlutlæg ábyrgð vegna umferðarlagabrota. Áformað er að mæla fyrir um hlutlæga refsiábyrgð eiganda ökutækis vegna hraðakstursbrota. Einnig er til skoðunar að mæla fyrir um hlutlæga ábyrgð við innheimtu sekta við brotum á reglum um stærð og þyngd ökutækja og aksturs- og hvíldartíma ökumanna.
  • Gildistími ökuskírteina. Nýverið voru gerðar breytingar á ákvæðum um gildistíma ökuskírteina eldri ökumanna, m.a. í því skyni að draga úr álagi á heilbrigðisstarfsfólk. Tilefni þykir til að gera breytingar á heimildum umferðarlaga til afturköllunar ökuréttinda í því skyni að tryggja að umferðaröryggi verði ekki skert með breytingunni.

Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar til og með 4. október 2026.