27. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Dvalarleyfisfrumvarp dómsmálaráðherra afgreitt úr ríkisstjórn

{image.Description}

Ríkisstjórnin afgreiddi í dag frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á dvalarleyfiskafla útlendingalaga. Þetta eru viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á kerfinu í áratug.

Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að samræma íslenskar reglur við löggjöf á öðrum Norðurlöndum og skapa traustan grunn fyrir skýrt og skilvirkt dvalarleyfiskerfi sem tryggir að ákvarðanir byggi á traustum grunni.

„Við þurfum dvalarleyfiskerfi sem tekur mið af þeim veruleika sem við búum við í dag. Kerfið hefur vaxið hratt á síðustu árum án þess að regluverkið hafi haldið í við þróunina. Nú erum við að setja skýra stefnu, færa reglurnar nær því sem gildir á hinum Norðurlöndunum og gera ríkari kröfur til þeirra sem vilja setjast hér að. Um leið styrkjum við vernd þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Ísland veitti á árunum 2020 til 2024 um 37 prósent fleiri dvalarleyfi á hvern íbúa en önnur Norðurlönd. Frá árinu 2017 hefur fjöldi dvalarleyfishafa fimmfaldast. Þrátt fyrir það hafa skilyrði fyrir dvalarleyfi að mestu staðið óbreytt frá árinu 2016.

Meginþættir frumvarpsins eru fjórir:

  • Örugg auðkenning umsækjenda
  • Samræming skilyrða fjölskyldusameiningar og ótímabundins dvalarleyfis við önnur Norðurlönd,
  • Sterkari réttarstaða þolenda mansals og vinnumarkaðsbrota
  • Breytingar á einstökum leyfisflokkum, þar á meðal brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar.

Ríkari kröfur til umsækjenda

Í frumvarpinu eru meðal annars lagðar til breytingar á skilyrðum fjölskyldusameiningar. Lágmarkstími sambúðar verður lengdur úr einu ári í tvö og báðir makar þurfa að hafa náð 24 ára aldri þegar leyfi er veitt líkt og er bæði í Noregi og Danmörku. Aldursskilyrðinu er meðal annars ætlað að sporna við nauðungar-og málamyndahjúskap. Þá verður gerð krafa um að umsækjandi um fjölskyldusameiningu hafi til umráða íbúðarhúsnæði sem rúmi alla fjölskylduna.

Einnig verða gerðar skýrari kröfur um að umsækjendur geti sannað á sér deili. Í frumvarpinu er lagt til að auðkenning verði sjálfstætt skilyrði dvalarleyfis en heimilt verður að taka ljósmynd og fingraför vegna umsóknar fyrr í ferlinu.

Lagt er til að almennur búsetutími sem þarf til að öðlast ótímabundið dvalarleyfi verði lengdur úr fjórum árum í sex. Þá er gerð krafa um að viðkomandi sé skuldlaus við hið opinbera. Ótímabundið dvalarleyfi felur í sér varanlegan dvalarrétt og er skref í átt að ríkisborgararétti.   Varanlegur dvalarréttur á að byggja á traustum tengslum við samfélagið.

Aukin vernd gegn misneytingu

Í frumvarpinu er einnig að finna mikilvægar breytingar sem er ætlað að bæta stöðu þolenda mansals og sporna við brotum á vinnumarkaði. Meðal annars verður heimilt, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, að veita fólki sem grunur leikur á að hafi sætt misneytingu allt að 12 mánaða dvalarleyfi svo það geti leitað réttar síns og fundið annað starf án þess að eiga á hættu að missa dvalarrétt sinn.

Þá er lagt til að dvalarleyfi vegna vistráðningar fyrir fólk utan EES verða felld úr gildi. Markmiðið er að draga úr hættu á misneytingu fólks sem hefur dvalarrétt bundinn við eina fjölskyldu og býr við takmarkaða möguleika á að leita réttar síns.