30. október 2026 /
Innviðaráðuneytið

Fjarskiptaöryggi bætt á fimm stöðum um landið

{image.Description}
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar handsala samning.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði í dag tvo samninga um uppbyggingu og styrkingu fjarskiptainnviða á fimm stöðum um landið. Annars vegar var gerður samningur við sveitarfélagið Borgarbyggð um bætta farnetþjónustu í sveitarfélaginu sem Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri undirritaði. Hins vegar samningur við Öryggisfjarskipti um eflingu fjarskiptainnviða á fjórum svæðum á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi.

Verkefnin miða öll að því að bæta útbreiðslu farnets og auka öryggi fjarskipta en framlög ráðuneytisins til þeirra nema samtals 37,1 milljón kr. Undirbúningur er hafinn og stefnt að verklokum vorið 2027.

Bætt farnetssamband í Borgarbyggð

Farnetssamband sunnan Ljósufjalla við Grjótárvatn og í Hítardal er víða takmarkað. Markmið verkefnisins er að bæta almenna farnetsþjónustu og möguleika á neyðarsímtölum, ekki síst ef hættuástand skapast og rýma þarf svæðið.

Reistur verður nýr sendastaður nærri Staðarhrauni. Borgarbyggð leiðir verkefnið, sér um uppbyggingu aðstöðu, mastur og tengingar við rafmagn og ljósleiðara. Míla leggur til fjarskiptabúnað og annast uppsetningu hans og rekstur. Framlag ráðuneytisins til stofnkostnaðar sveitarfélagsins er 4,5 milljónir kr.

Fjögur verkefni til að bæta samband og auka öryggi

Samningurinn við Öryggisfjarskipti nær til fjögurra verkefna á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi. Verkefnin miða að því að styrkja fjarskiptainnviði, draga úr hættu á alvarlegum þjónustutruflunum og auka útbreiðslu farnets á stofnvegum og fjölförnum ferðamannastöðum.

  • Dynjandisheiði – Komið verður upp nýrri fjarskiptastöð sem mun þjóna bæði neyðar- og öryggisfjarskiptum og almennri farnetsþjónustu. Framkvæmdin tengist meðal annars breytingu vegarins um heiðina í heilsársveg. Framlag ráðuneytisins verður nýtt til lagningar rafstrengs og ljósleiðara að stöðinni.
  • Látrabjarg – Lagður verður ljósleiðari frá Breiðuvík að fjarskiptastöðinni á Urðarhjalla til að auka rekstraröryggi fjarskipta á svæðinu. Stöðin þjónar svæðinu umhverfis Látrabjarg og stórum hafsvæðum vestan þess og á Breiðafirði. Ljósleiðarinn mun einnig geta nýst fyrirhugaðri veðurratsjárstöð Veðurstofu Íslands.
  • Glymur í Hvalfirði – Byggð verður ný fjarskiptaaðstaða sem bætir farnetssamband bæði á stofnveginum um Hvalfjarðarbotn og á fjölfarinni gönguleið að Glymi. Takmarkað samband á gönguleiðinni hefur meðal annars valdið erfiðleikum þegar slys hafa orðið.
  • Mjóifjörður – Lagður verður viðbótarljósleiðari yfir um Brekkugjá til að auka öryggi fjarskipta við Mjóafjörð og Dalatanga. Fyrir nokkru sleit grjótskriða eina ljósleiðarann inn á svæðið og olli sambandsrofi um tíma. Með tveimur aðskildum lagnaleiðum verður dregið úr hættu á að slíkt endurtaki sig.

Öryggisfjarskipti annast framkvæmd verkefnanna fjögurra eftir atvikum í samstarfi við fjarskiptafyrirtæki og aðra aðila. Framlag ráðuneytisins til stofnkostnaðar er 32,6 milljónir kr. Magnús Hauksson framkvæmdastjóri undirritaði samninginn fyrir hönd Öryggisfjarskipta en Þorvarður Sveinsson framkvæmdastjóri Korda var einnig viðstaddur undirritunina.

 

Þorvarður Sveinsson framkvæmdastjóri Korda, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Magnús Hauksson framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta við undirritunina.
Þorvarður Sveinsson framkvæmdastjóri Korda, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Magnús Hauksson framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta við undirritunina.