18. september 2026 /
Utanríkisráðuneytið
Föstudagspóstur 18. september 2026
Föstudaginn síðastliðinn fundaði ráðherra með Dr. Younis Al-Khatib, forseta palestínska Rauða hálfmánans, í utanríkisráðuneytinu. Forsetinn í boði Rauða kross Íslands til að vekja athygli á alvarlegri stöðu mannúðarmála í Palestínu. Í tilefni heimsóknarinnar var hádegisverðarfundur skipulagður af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og landsnefndar um mannúðarrétt, sem bar yfirskriftina Vernd og mannúð á átakasvæðum: Áskoranir og árangur í starfi palestínska Rauða hálfmánans.
Ýmislegt annað hefur átt sér stað stað í ráðuneytinu í vikunni. Fyrsti fundur embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins í formennskutíð Íslands var haldinn á þriðjudaginn og miðvikudaginn, en hann sóttu fulltrúar frá Norðurlöndunum fimm, Eystrasaltsríkjunum þremur, Póllandi, Þýskalandi og Evrópusambandinu. Föstudaginn síðastliðinn komu fulltrúar aðildarríkja Evrópusambandsins sem eiga sæti í starfshópi innan Ráðherraráðs ESB, sem m.a. ber ábyrgð á samskiptum Íslands við sambandið og framkvæmd EES-samningsins. Þorgerður Katrín tók á móti hópnum í utanríkisráðuneytinu og lagði í ávarpi sínu áherslu á mikilvægi EES-samningsins.
Það var mikið umstang í Finnlandi í byrjun vikunnar þegar fjöldi evrópskra leiðtoga og fulltrúar Evrópusambandsins sótti fund um norðurslóðamál sem finnski forsætisráðherrann bauð til í Rovaniemi. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sótti kvöldverðarfund í boði Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, en hann sóttu m.a. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, Alexander Stubb, forseti Finnlands, Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, og fleiri.
Sendiráð Íslands, Danmerkur og Svíþjóðar blésu til menningar- og listahátíðarinnar undir yfirskriftinni Samstarfsdagur Úganda og Norðurlanda (Nordic - Ugandan Partnership Day) þar sem ungu fólki frá Úganda og Norðurlöndum gafst kostur á að kynnast, skapa list saman og skiptast á hugmyndum. Íslenska fjöllistakonan Rán Flygenring tók þátt í viðburðinum þar sem hún var m.a. með vinnustofuna Teiknuð saman eða Drawn Together.
Elín R. Sigurðardóttir afhenti Karli Gústafi Svíakonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Svíþjóð við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Stokkhólmi.
Bryndís Kjartansdóttir afhenti Alexander Van der Bellen, forseta Austurríkis, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Austurríki við hátíðlega athöfn í forsetahöllinni Hofburg í Vínarborg í vikunni
Viðburðurinn Nordic-India Dialogue var haldinn í þriðja sinn og fór fram í Nýju-Delí dagana 10. og 11. september þar sem stefnumótendur, fræðafólk og rannsakendur úr akademíu sem og fulltrúar úr indversku og norrænu atvinnulífi komu saman til að ræða aukið samstarf Norðurlanda og Indlands. Ráðuneytisstjóri indverska utanríkisráðuneytisins, Shri Pabitra Margherita, flutti opnunarávarp á viðburðinum.
Sendiherra Íslands í Kanada, Auðbjörg Halldórsdóttir, var á ferð og flugi í vikunni en hún heimsótti hið víðfeðma fylki Nunavut í nyrsta hluta Kanada í tengslum við árlegu viðskiptasýninguna í borginni Iqaluit. Í heimsókn sinni til Nunavut fundaði sendiherra m.a. með fylkisstjóranum John Main og varamanni hans, George Hickes, fulltrúum fyrirtækja og viðskiptaráða og fleiri. Markmið heimsóknarinnar var að styrkja tengsl Íslands við fylkið og styrkja sömuleiðis viðskiptatengsl.
Sendiráð Íslands í Varsjá skipulagði listaviðburð í Kænugarði þar sem höggmyndir eftir Steinunni Þórarinsdóttur voru til sýnis. Gaman er að segja frá því að Yevhen Perebyinis, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu, sótti opnun sýningarinnar og hélt þar stutta tölu um gott samstarf milli Íslands og Úkraínu og samstöðu íslensku þjóðarinnar með Úkraínu í varnarbaráttu sinni. Íslenska heimildarmyndin Dagurinn sem Ísland stöðvaðist eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur og Pamelu Hogan var sýnd, en myndin fjallar um Kvennafrídaginn árið 1975.
Sendiráð Íslands í Washington D.C. tók þátt í norrænu matreiðslukeppninni The Great Nordic Cook-Off í vikunni. Stjörnukokkurinn Gunnar Karl Gíslason var fulltrúi Íslands í keppninni og lagði, að sjálfsögðu, áherslu á hið allra besta sem fæst úr íslenskri náttúru og matarmenningu. Viðburðurinn var skipulagður af sendiráðum Norðurlanda í Bandaríkjunum.
Það var mikið húllumhæ á viðburðinum Taste of Iceland sem skipulagður var af sendiráðinu okkar í London og Íslandsstofu og fleiri samstarfsaðilum. Um var að ræða almennilega menningarhátíð með fjölbreyttri dagskrá og viðburðum þar sem íslensk menning, matargerð, tónlist, bókmenntir, ferðaþjónusta og atvinnulíf voru í fyrirrúmi. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, sendiherra Íslands í London, flutti opnunarávarp. Taste of Iceland kynnir ekki einungis íslenska menningu heldur skapar hátíðin, líkt og ofangreinda matreiðslukeppnin í Washingon D.C, tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til þess að tengjast erlendum fyrirtækjum á fjölbreyttum sviðum.
Sendiráðið okkar í Kaupmannahöfn stóð fyrir 10 ára afmælisfögnuði Nordic Safe Cities samtakanna sem sett voru á laggirnar með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Kaupmannahöfn árið 2015. Leik- og söngkonan Trine Dyrholm tók listilega nokkur lög úr íslensku þáttaröðinni um Dönsku konuna.
Lykilfólki úr norska ferðamannageiranum var boðið í kynningarkvöldverð í sendiráðsbústaðnum í Osló þar sem viðskiptatækifæri á Íslandi voru kynnt sem og íslenskar gæðaútflutningsvörur, líkt og lambakjötið okkar góða. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Norsk - Íslenska viðskiptaráðið, Íslandsstofu, Icelandair, DMC North og Íslenskt lambakjöt.
Meira verður það ekki í bili!
Bestu kveðjur, Upplýsingadeild.