17. september 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Framleiðslutengdur stuðningur við kornrækt

{image.Description}
istock/Nastco

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um framleiðslutengdan stuðning í kornrækt vegna uppskeru ársins 2026.

Stuðningurinn byggir á aðgerðaáætluninni Bleikir Akrar og er hluti af fimm ára átaksverkefni til eflingar innlendrar framleiðslu á korni til fóðurs og manneldis.

Greiddur verður stuðningur pr. kg.  þurrkaðs korns með þurrefnisinnihald að lágmarki 85% sem stenst eftirfarandi skilyrði:

  • Bygg með rúmþyngd 600g pr. lítra eða meira
  • Bygg með rúmþyngd á bilinu 550-599 g pr. lítra
  • Hveiti með rúmþyngd 700g pr. lítra eða meira
  • Hafrar með rúmþyngd 500g pr. lítra eða meira

Umsókn skal fylgja vottorð frá fagaðila sem ráðuneytið viðurkennir. Fagaðili staðfestir gæði sbr. ofangreinda flokka. Viðurkenndir aðilar við birtingu þessarar auglýsingar eru fóðurfyrirtæki sem kaupa korn af ræktendum og Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands.

Nánari leiðbeiningar er að finna í reglugerð 350/2024 um stuðning við kornrækt og á Afurð.

Umsóknum skal skila á afurd.is í síðasta lagi þann 10. nóvember