Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður í Hanoi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritaði fyrr í vikunni fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Víetnam fyrir Íslands hönd í Hanoi, höfuðborg Víetnams. Samningurinn bætir markaðsaðgang fyrir íslenskar vörur og þjónustu á markað í Víetnam, skapar fyrirsjáanlegri viðskiptaskilyrði og styrkir fjárfestingartengsl ríkjanna sem aðild eiga að samningnum.
Nær allur núverandi útflutningur EFTA-ríkjanna – Íslands, Noregs, Sviss og Liechtenstein – til Víetnam verður tollfrjáls við gildistöku samningsins eða í áföngum eftir gildistöku. Samningurinn er meðal annars mikilvægur fyrir útflutning sjávarafurða og vélbúnaðar og veitir fyrirtækjum EFTA-ríkjanna sambærilegan markaðsaðgang á lykilsviðum og helstu keppinautar þeirra njóta.
„Með þessum samningi opnum við íslenskum fyrirtækjum ný tækifæri á stórum og vaxandi markaði. Bættur markaðsaðgangur og fyrirsjáanlegri viðskiptaskilyrði skapa traustan grunn fyrir aukinn útflutning og nánara samstarf landanna. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þau tækifæri sem samningurinn felur í sér en samningurinn veitir ekki síst tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg og jarðvarma. Hvort tveggja svið þar sem Ísland er í forystuhlutverki,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Víetnam er rúmlega 100 milljón manna markaður. Vöruútflutningur Íslands til Víetnams nam 452 milljónum króna árið 2025 og jókst um 40% frá fyrra ári. Sjávarafurðir voru um 93% útflutningsins og makríll stærsti einstaki útflutningsliðurinn.
Samningurinn er víðtækur og tekur meðal annars til vöru- og þjónustuviðskipta, fjárfestinga, upprunareglna, hugverkaréttinda og opinberra innkaupa. Hann greiðir fyrir viðskiptum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og inniheldur skuldbindingar um umhverfisvernd, loftslagsmál og réttindi launafólks.
Auk utanríkisráðherra Íslands undirrituðu samninginn fyrir hönd EFTA-ríkjanna Brigitte Haas, forsætisráðherra Liechtensteins, Guy Parmelin, forseti Sviss og yfirmaður efnahags-, mennta- og rannsóknaráðuneytisins, og Astrid Bergmål, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs. Lê Mạnh Hùng, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Víetnams, undirritaði fyrir hönd Víetnams. Tô Lâm, forseti Víetnams var einnig viðstaddur athöfnina. Utanríkisráðherra átti einnig tvíhliðafund með varaviðskiptaráðherra Víetnam, Luong Hoang Thai.