6. nóvember 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs 8. október 2026

Reykjavík, 8. október 2026

Efni:      Fundargerð fjármálastöðugleikaráðs

Fundur haldinn í fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Ráðsmenn: Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, formaður, og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.

Aðrir fundarmenn: Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, Flóki Halldórsson framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs, Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, Steinn Friðriksson, sérfræðingur á skrifstofu bankastjóra, Hermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti, Sigurður Páll Ólafsson, skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála, Guðrún  Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu fjármálamarkaðar, Ólafur Heiðar Helgason, sérfræðingur á skrifstofu efnahagsmála, Eggert Páll Ólason, sérfræðingur á skrifstofu fjármálamarkaðar, og Gunnar Örn Indriðason, ritari fjármálastöðugleikaráðs.

Fundur hófst kl. 14:00.

 

1. Staða og horfur í fjármálakerfinu og hagkerfinu

Seðlabankinn fór yfir stöðu, horfur og helstu áhættuþætti í fjármála- og hagkerfinu. Alþjóðapólitísk áhætta er áfram mikil og vextir erlendis hafa farið hækkandi. Skuldsetning hins opinbera er hófleg í alþjóðlegum samanburði en vaxtagjöld eru há. Þegar á heildina er litið er viðnámsþróttur heimila, fyrirtækja og banka mikill. Íbúðaverð hefur lækkað að raunvirði og framboð íbúða aukist. Birgðatími nýbygginga hefur lengst og útlán til byggingageirans hafa aukist, en jafnframt eru merki um að dregið hafi úr íbúðabyggingu. Aðflutningur fólks hefur minnkað og atvinnuleysi aukist. Vanskil heimila eru enn lítil en hafa aukist hjá fyrirtækjum í nokkrum atvinnugreinum. Þá var fjallað um rekstraröryggi fjármálakerfisins og aukna netáhættu, meðal annars í tengslum við gervigreind og sameiginlega tæknilega innviði.

2. Sérstök umræða

a)     Uppfærðar starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs

Uppfærðar starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs ræddar og samþykktar. Reglurnar eru færðar til samræmis við núverandi skipulag og starfshætti ráðsins og ábyrgð á umsýslu og undirbúningi funda skýrð. Jafnframt er fundarskipulag uppfært, meðal annars með sérstakri umfjöllun um ákvarðanir skilavalds Seðlabankans, og verklag um fundargerðir, þátttöku utanaðkomandi sérfræðinga og fjarfundi skýrt nánar.

b)     Uppfærð opinber stefna um fjármálastöðugleika

Samþykkt var uppfærð opinber stefna um fjármálastöðugleika. Meginmarkmið stefnunnar eru óbreytt en áherslur eru skýrðar og útfærðar. Auk áherslu á kerfisáhættu og viðnámsþrótt fjármálakerfisins er nú meðal annars lögð meiri áhersla á rekstrar- og netáhættu, áhættu utan bankakerfisins og þróun fjármögnunarskilyrða. Jafnframt er fjallað skýrar um hliðaráhrif þjóðhagsvarúðartækja, gagnsæi og upplýsingagjöf og ábyrgð stjórnvalda á sviði fjármálastöðugleika.

c)     Samstarfssamningur fjármála- og efnahagsráðuneytis og skilavalds Seðlabanka Íslands vegna framkvæmdar skilameðferðar lánastofnana og verðbréfafyrirtækja

Samþykkt voru drög að samstarfssamningi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og skilavalds Seðlabanka Íslands vegna framkvæmdar skilameðferðar lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Samningnum er ætlað að formfesta reglulegt samstarf og upplýsingaskipti samningsaðila, efla viðbúnað og tryggja nauðsynlega þekkingu vegna verkefna samkvæmt lögum um skilameðferð. Gert er ráð fyrir reglulegum fundum þar sem meðal annars verði fjallað um viðbúnað, skilaáætlanagerð og framkvæmd skilaúrræða.

 

3. Önnur mál

Á fundinum var gerð grein fyrir undirbúningi að ákvörðunum skilavalds frá síðasta fundi ráðsins. Kynnt voru áform fjármála- og efnahagsráðuneytisins um lagabreytingar sem ætlað er að draga úr vægi verðtryggingar á húsnæðislánamarkaði.

 

Drög að fréttatilkynningu voru samþykkt.

Fundi var slitið um kl. 14:45

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, formaður fjármálastöðugleikaráðs

Var efnið hjálplegt?