18. september 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Fyrsti embættismannafundur Eystrasaltsráðsins í formennskutíð Íslands

{image.Description}
Fundur embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins var haldinn í utanríkisráðuneytinu.

Fyrsti fundur embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins í formennskutíð Íslands var haldinn í Reykjavík dagana 15.-16. september. Fulltrúar frá Norðurlöndunum fimm, Eystrasaltsríkjunum þremur, Póllandi, Þýskalandi og Evrópusambandinu, auk starfsmanna Eystrasaltsráðsins, sóttu fundinn þar sem áfallaþol samfélaga var eitt meginviðfangsefnið. Hópurinn fékk einnig kynningu hjá HS Orku um starfsemi þess og viðbrögð við eldsumbrotum á svæðinu. Hópurinn skoðaði varnargarða undir leiðsögn EFLU og fékk síðan fræðslu hjá bæjarstjóra Grindavíkur um stöðu og framtíðarhorfur bæjarfélagsins.

Ísland mun í formennskutíð sinni í Eystrasaltsráðinu hafa áfallaþol samfélaga (resilience) í öndvegi og leitast við að halda áfram og byggja á hagnýtu samstarfi ríkjanna í samræmi við langtímaforgangsmál Eystrasaltsráðsins um öryggi, sjálfbærni og samheldni svæðisins.