Göng og brú kynnt fyrir alþjóðlegum ráðgjöfum og fjárfestum
Nýtt innviðafélag ríkisins, Göng og brú, hélt í dag kynningar- og markaðsdag í Hörpu sem er hluti af útboðsferli félagsins á EES svæðinu. Þar voru félagið og verkefni þess kynnt fyrir alþjóðlegum ráðgjöfum og fjárfestum. Erlendir sem og íslenskir samstarfsaðilar eru lykillinn að því að raungera þau verkefni sem stjórnvöld munu treysta félaginu fyrir til að rjúfa kyrrstöðu í stórum samgönguframkvæmdum.
Undirrituð var viljayfirlýsing milli innviðaráðuneytisins og Ganga og brúar um uppbyggingu samgöngumannvirkja. Viljayfirlýsingin er fyrsta skrefið í því að ríkið feli félaginu formlega ábyrgð þegar kemur að t.a.m. uppbyggingu, fjármögnun og rekstri verkefna á borð við samgöngumannvirki við Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú, Fljótagöng, Sundabraut og stækkun Hvalfjarðarganga.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fluttu erindi á fundinum. Auk þeirra tóku til máls Guðmundur Daði Rúnarsson, forstjóri Ganga og brúar, Stuart Cairns frá Bird&Bird, útboðsráðgjafa Ganga og brúar, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Esther Finnbogadóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Framtíðarsýn og umboð Ganga og brúar
Forsætisráðherra fjallaði um mikilvægi þess að rjúfa kyrrstöðu í stórum samgönguframkvæmdum með langtímahugsun og nýrri nálgun. Göng og brú verði sérhæft félag sem geti tryggt samfellu í undirbúningi, fjármögnun og framkvæmd verkefna sem bæta samgöngur, stytta ferðatíma og auka lífsgæði.
„Stofnun Ganga og brúar markar nýtt upphaf í stærri samgönguframkvæmdum á Íslandi. Við höfum farið hratt af stað og þátttakan í þessum markaðs- og kynningardegi sýnir mikla trú á upplegginu og áhuga alþjóðlegra fjárfesta á að koma að uppbyggingu þjóðhagslega mikilvægra innviða á Íslandi. Ég er hæstánægð með að við séum loksins að gera þetta að veruleika til að hefja á ný stórframkvæmdir í samgöngum. Þetta er stór dagur fyrir Ísland,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Samspil Vegagerðar og innviðafélags
Innviðaráðherra ræddi hvernig nýtt innviðafélag muni sinna stórum og þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum. Um leið fái Vegagerðin aukið svigrúm til að vinna á viðhaldsskuld og sinna almennri uppbyggingu vegakerfisins. Þannig megi efla samgöngukerfið í heild án þess að mikilvæg verkefni sitji á hakanum.
„Með tilkomu nýs innviðafélags tryggjum við aukinn kraft í fjármögnun stórframkvæmda og jafnframt að önnur brýn verkefni fái meira svigrúm. Þegar stórverkefnin færast yfir til félagsins losnar um dýrmætt fjármagn innan samgönguáætlunar sem við munum nýta til fulls í viðhald vega og önnur forgangsverkefni um allt land sem standa ekki undir sér með gjaldtöku, t.d. tengivegi, brýr, sjóvarnir og fleira.“
Fjármögnun, skilvirkni og ábyrgð við uppbyggingu samgönguinnviða
Fjármála- og efnahagsráðherra lagði áherslu á að Göng og brú skapi nauðsynlega umgjörð um fjármögnun og framkvæmd stórra verkefna, þar sem ávinningur fyrir notendur og samfélagið allt verður ávallt hafður að leiðarljósi.
„Við viljum byggja upp langtímasamstarf við þá bestu á þessu sviði: ráðgjafa, fjármögnunaraðila og verktaka sem hafa sannað hæfni sína og leggja metnað sinn í vönduð vinnubrögð. Ég hef fulla trú á því að Göng og brú muni rísa undir þessu mikilvæga verkefni.“