4. nóvember 2026 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Greining á jarðakaupum erlendra aðila

{image.Description}
DL

Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, hefur skipað sérfræðihóp sem falið er að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum á Íslandi.

Hópnum er einnig ætlað að greina framtíðaráskoranir tengdar erlendu eignarhaldi jarða og hvort þörf sé á að leggja til breytingar á lögum til að takmarka frekar jarðakaup erlendra aðila hér á landi eða gera aðrar ráðstafanir.

Skipunin er gerð á grundvelli þingsályktunar nr. 20/157 frá 19. júní sl. um jarðakaup erlendra aðila þar sem atvinnuvegaráðherra er falið í samráði við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að skipa fyrrgreindan sérfræðihóp.

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili skýrslu sem lögð verður fram á Alþingi og nýtt sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingu á jarðalögum sem verður lagt fram af atvinnuvegaráðherra á 159. löggjafarþingi.

Friðrik Árni Friðriksson Hirst, aðjúnkt við Háskóla Íslands, er formaður hópsins sem er þannig skipaður:

  • Kristín Ösp Jónsdóttir, lögfræðingur í atvinnuvegaráðuneytinu
  • Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu
  • Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingur í umhverfis-, orku – og loftlagsráðuneytinu,
  • Björn Ingi Brands Óskarsson, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu
  • Magnea Magnúsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu 

Áformað er að starfhópurinn taki til starfa í nóvember 2026 og skili fyrir 1. mars 2027, skýrslu sem atvinnuvegaráðherra mun leggja fram á Alþingi.

 
 

Var efnið hjálplegt?