27. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra stýrir Evrópufundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Kaupmannahöfn

{image.Description}

76. fundur Evrópunefndar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fer fram í Kaupmannahöfn dagana 27.–29. október 2026. Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra Íslands, gegnir formennsku á fundinum, þar sem heilbrigðisráðherrar og háttsettir fulltrúar 53 aðildarríkja Evrópusvæðis WHO koma saman til að ræða helstu áskoranir og áherslur í heilbrigðismálum Evrópu.

Fundurinn er einn mikilvægasti árlegi vettvangur stefnumótunar og samstarfs Evrópuríkja á sviði heilbrigðismála. Þar eru teknar ákvarðanir um sameiginlegar áherslur, stefnumótun og starf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu.

Alma D. Möller stýrir fundinum sem forseti Evrópunefndarinnar (President of the Regional Committee). Formennskan felur meðal annars í sér að leiða umræður aðildarríkjanna, stýra afgreiðslu mála og stuðla að samstöðu um mikilvægar ákvarðanir.

Öldrun, gervigreind og framtíð heilbrigðisþjónustu

Á dagskrá fundarins eru fjölbreytt málefni sem varða framtíð heilbrigðisþjónustu í Evrópu. Meðal helstu mála sem tekin verða til umfjöllunar eru ný stefna um heilbrigða öldrun og vellíðan á öllum æviskeiðum fyrir tímabilið 2026–2030 og vegvísir um ábyrga og örugga nýtingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu til ársins 2033.

Einnig verður fjallað um forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum, geðheilbrigði og heilsueflingu. Þá verða fjárhagsáætlanir, stjórnsýsla og framtíðaráherslur WHO í Evrópu til umræðu.

Á fundinum verða jafnframt teknar ákvarðanir um fyrirhugaðar svæðisskrifstofur WHO (Geographically Dispersed Offices, GDOs), meðal annars á sviði gæða og öryggis heilbrigðisþjónustu og gervigreindar. Einnig fara fram tilnefningar og kosningar til stjórnarnefnda WHO, þar sem Ísland hefur boðið fram fulltrúa sinn til setu í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (Executive Board).

Í tengslum við fundinn munu frambjóðendur til embættis framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar kynna sig og áherslur sínar fyrir fulltrúum aðildarríkjanna.

Nánari upplýsingar um fundinn og dagskrá hans má finna á vef Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.