23. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

{image.Description}
Mynd: iStock

Auglýst er eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála.

Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Verkefnin skulu falla að heilbrigðis- og lýðheilsustefnu. Styrkirnir eru meðal annars veittir til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna eða hópa þeim tengdum
  • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti lýkur verður ekki tekin til umfjöllunar. Ekki verður tekið við umsóknum um rekstrarstyrki.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum eru á eyðublaðavef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 30. nóvember 2026
Úthlutað verður eigi síðar en 26. febrúar 2027