Hverju myndi íslenska í Apple-tækjum breyta fyrir þig?
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum Apple í apríl síðastliðnum og óskaði eftir því að íslenska yrði innleidd í stýrikerfi fyrirtækisins. Í kjölfarið hefur íslenskum máltæknigögnum verið deilt með Apple til að auðvelda innleiðingu.
Söfnun notendadæma er næsta skref í eftirfylgni ráðuneytisins. Dæmunum er ætlað að gefa fulltrúum Apple skýrari mynd af þeim hindrunum sem íslenskir notendur mæta og þeim ávinningi sem íslenskur tungumálastuðningur hefur í för með sér.
Reynsla notenda styrkir samtalið við Apple
„Máltækni er ekki munaður heldur mannréttindamál. Við þurfum hjálp notenda og þeirra sem þekkja aðstæður þeirra til að sýna Apple með raunverulegum dæmum hvað er í húfi. Því hvet ég fólk til að deila reynslu sinni,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Dæmin geta komið frá notendum sjálfum, aðstandendum, aðstoðarfólki eða fagaðilum og varðað bæði börn og fullorðna.
Tungumálið getur ráðið úrslitum um aðgengi
Innbyggðir aðgengiseiginleikar Apple-tækja og forrit geta skipt sköpum fyrir fatlað fólk auk annarra sem glíma við aðgengisvanda að sögn ÖBÍ réttindasamtaka en ÖBÍ er samstarfsaðilli ráðuneytisins í verkefninu auk Almannaróms. Sum þessara forrita eru eingöngu í boði fyrir Apple-tæki auk þess sem Apple tækin tala saman með tilheyrandi einföldun.
„Aðgengi að snjalltækni skiptir í dag öllu máli og sérstaklega fyrir fatlað fólk. Tæknin getur fjarlægt hindranir og fjölgað til muna tækifærum til menntunar og atvinnu,“ segir Rósa María Hjörvar, stafrænn verkefnastjóri hjá ÖBÍ.
Hún nefnir sem dæmi að fólk með hreyfihömlun noti almennt raddstýringar á eigin tungumáli sem innbyggt er í Apple-tæki til þess að stjórna símtækjum og með þeim stjórna umhverfi og samskiptum. Þetta gerir fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi þrátt fyrir mikla hreyfiskerðingu eða lömun. Á Íslandi er ekki hægt að nýta þessa tækni nema á ensku, þannig geta notendur ekki opnað íslensk smáforrit eins og Hljóðbókasafnið eða skrifað á íslensku. Til þess þarf viðkomandi að kalla eftir aðstoð. Þetta sé þó aðeins ein af mörgum hindrunum sem íslenskuleysið skapar.
Hver er þín reynsla?
Sendu stutta lýsingu á [email protected]. Ef auðveldara er að segja frá í símtali geturðu sent nafn og símanúmer á sama netfang og óskað eftir að haft verði samband.
Hvað þarf að koma fram í lýsingunni?
- Aldur og upplýsingar um aðgengisþarfir ef þær skipta máli fyrir dæmið.
- Hvaða tæki, forrit eða aðgengiseiginleika þú vilt geta notað.
- Hvað er erfitt eða ómögulegt að gera vegna þess að íslenska er ekki í boði.
- Hvaða áhrif það hefur á samskipti, nám, sjálfstæði eða önnur dagleg verkefni.
- Hvað myndi breytast ef þú gætir notað tækið og aðgengislausnir þess á íslensku.
Ekki þarf að tilgreina nafn, greiningu eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar um þann sem dæmið varðar. Láttu þó fylgja netfang tengiliðar svo ráðuneytið geti fylgt erindinu eftir.
Nýja aðgengistækni Apple má kynna sér hér.
Deildu ákallinu!
Þekkir þú einstakling sem myndi njóta góðs af íslensku í Apple-tækjum? Hjálpaðu viðkomandi að koma reynslu sinni á framfæri og styddu þannig við íslensku í Apple-tækjum og jöfn tækifæri allra til að nýta tæknina.
Hannað fyrir alla nemendur
„I’m Not Remarkable“ er herferð Apple frá desember 2025 um aðgengi fatlaðra nemenda að háskólanámi og stúdentalífi. Myndin er söngleikur sem fylgir nemendum í fyrirlestra, á bókasafnið, í íþróttir og partí.
Í myndbandinu sýnir Apple hvernig aðgengistækni getur stutt fatlaða nemendur í námi og daglegu lífi m.a. með VoiceOver-skjálesara, stækkun á texta af kennslutöflu, punktaleturstengingu við iPad, sjálfvirkan skjátexta og tilkynningu í síma þegar nafn heyrnarlauss nemanda er kallað. Boðskapurinn er skýr: Allir eiga að geta tekið þátt á eigin forsendum. Íslenskur tungumálastuðningur er mikilvægur liður í að tryggja íslenskumælandi notendum sömu tækifæri til að nýta þessa möguleika.