29. október 2026 /
Forsætisráðuneytið

Innleiðing atvinnustefnu gengur vel og fjórum aðgerðum lokið

Staða aðgerða atvinnustefnu er almennt góð og innleiðing gengur vel þótt dæmi séu um tafir á einstaka aðgerðum. Þetta kemur fram í fyrstu stöðuskýrslu um innleiðingu atvinnustefnu Íslands sem hefur verið kynnt atvinnustefnuráði og ráðherranefnd um efnahagsmál. Þar kemur fram að fjórum af 35 aðgerðum er lokið, 23 eru í vinnslu og átta í undirbúningi. Allar aðgerðir eru hafnar.

Atvinnustefna Íslands til 2035 var samþykkt í mars síðastliðnum og kynnt í apríl ásamt fyrstu aðgerðaáætluninni fyrir árin 2026–2027. Meginmarkmið stefnunnar er kröftugur vöxtur útflutnings sem byggir á atvinnugreinum með mikla framleiðni. Aðgerðirnar 35 eru á ábyrgð tíu ráðuneyta og miða meðal annars að því að styrkja innviði, einfalda regluverk, efla vísindi og nýsköpun og tryggja færni til framtíðar.

Fjórum aðgerðum lokið

Í fyrstu stöðuskýrslunni er greint frá fjórum aðgerðum sem þegar hefur verið lokið:

  1. Lífeyrissjóðum veitt aukið frelsi til fjárfestinga. Lagabreytingar tóku gildi 1. júlí og auka svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga, meðal annars í þágu nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar.
  2. Löggjöf um rýni fyrir erlendar fjárfestingar. Ný lög voru samþykkt í júní og taka gildi 1. janúar 2027. Þau skapa skýrari lagaumgjörð um erlendar fjárfestingar með tilliti til þjóðaröryggis og mikilvægra innviða.
  3. Stuðningur við nýsköpun á sviði kolefnisföngunar frá staðbundnum iðnaði. Tvö nýsköpunarverkefni hlutu samtals 360 milljóna króna styrki úr Loftslags- og orkusjóði til þróunar tæknilausna sem stuðla að samdrætti í losun frá iðnaði.
  4. Efling hafrannsókna fyrir sjávarútveg. Lagabreytingar voru samþykktar í apríl sem styrkja lagaumgjörð Hafrannsóknastofnunar og skerpa á hlutverki hennar og langtímastefnumótun.

Atvinnustefnuráð fagnar framförum en bendir á áskoranir

Atvinnustefnuráð fagnaði fyrstu stöðuskýrslunni og framgangi aðgerða, meðal annars á sviði einföldunar stjórnsýslu í umhverfis- og orkumálum, fjárfestingaheimilda lífeyrissjóða og bættrar málsmeðferðar atvinnu- og dvalarleyfa erlendra sérfræðinga.

Ráðið lýsti jafnframt áhyggjum af töfum á umbótum á regluverki lagareldis og rekstrarumhverfi gagnavera. Þá hvatti ráðið ríkisstjórnina til að gæta vel að endurgreiðslukerfi vegna kostnaðar við rannsóknar- eða þróunarverkefni og skoða hvort lengja megi skattaafslátt til handa aðfluttum sérfræðingum úr þremur árum í sjö til að standa jafnfætis flestum Norðurlöndunum að þessu leyti.

Sjá nánar um málið í fundargerð frá fundi atvinnustefnuráðs 21. október.

„Við fögnum því að nú liggi fyrir heildstætt yfirlit yfir innleiðingu atvinnustefnunnar og að mikilvæg skref hafi verið stigin. Jafnframt þarf að bregðast við töfum og tryggja skýra mælikvarða á árangur einstakra aðgerða. Regluleg og gagnsæ eftirfylgni skiptir sköpum til að halda framkvæmdinni á réttri braut,“ segir Robert-Jan Smits, formaður atvinnustefnuráðs.

Frá fundi atvinnustefnuráðs með ráðherranefnd um efnahagsmál 21. október sl. Frá vinstri: Gylfi Zoëga, Robert-Jan Smits, Kristrún Frostadóttir, Nana Bule, Ásthildur Otharsdóttir og Pétur Þ. Óskarsson.
Frá fundi atvinnustefnuráðs með ráðherranefnd um efnahagsmál 21. október sl. Frá vinstri: Gylfi Zoëga, Robert-Jan Smits, Kristrún Frostadóttir, Nana Bule, Ásthildur Otharsdóttir og Pétur Þ. Óskarsson.

Regluleg eftirfylgni með innleiðingu atvinnustefnunnar

Stöðuskýrslan er sú fyrsta í reglubundinni eftirfylgni með atvinnustefnunni. Áætlað er að vinna stöðuskýrslur ársfjórðungslega og birta helstu niðurstöður þeirra opinberlega. Stöðuskýrslurnar munu bæði fjalla um framvindu einstakra aðgerða og þróun þeirra níu mælikvarða sem skilgreindir hafa verið til að fylgjast með árangri atvinnustefnunnar til ársins 2035.