17. september 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Ísland styrkir stöðu sína í efsta sæti yfir kynjajafnrétti

{image.Description}

Ísland er 17. árið í röð í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) yfir jafnrétti kynjanna. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu ráðsins um alþjóðlega kynjabilið (e. Global Gender Gap).

Listinn felur í sér árlegt mat í 148 hagkerfum um allan heim á fjórum meginsviðum kynjajafnréttis, þ.e. á sviði atvinnutækifæra og þátttöku á vinnumarkaði, menntunar, heilsu og afkomu og stjórnmálaþátttöku Ísland bætir sig um 0,5%  og uppfyllir þar með 93% viðmiða Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti í ár.

„Það er mikið fagnaðarefni að Ísland sé enn og aftur í efsta sæti í kynjajafnrétti á heimsvísu. Efsta sætið þýðir samt ekki að jafnrétti sé í höfn. Við tökum ábendingum alvarlega og þær sýna að markmiðinu er ekki náð og enn er margt sem hægt er að bæta,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Ísland stendur best að vígi á sviði menntunar (99%), því næst heilsu og afkomu (96%), stjórnmálaþátttöku (95,%) og að lokum atvinnutækifæra og þátttöku á vinnumarkaði (81%). Engin önnur þjóð á listanum uppfyllir yfir 90% viðmiða ráðsins. Næst á eftir Íslandi eru Finnland (87,2%), Noregur (85,7%), Bretland (84,2%), Svíþjóð (82,3%), Þýskaland (81,7%) og Írland (81,4%).

Alþjóðaefnahagsráðið vekur athygli á því að þrátt fyrir góðan árangur  á sviði heilbrigðis og afkomu hafi heilbrigð ævi kvenna á Íslandi styst meira en karla frá því fyrir Covid-tímabilið. Með sama hætti sé hlutfall kvenna í æðstu stjórnendastöðum í atvinnulífinu lágt. Síðast en ekki síst er minnt á að enn hafi ekki náðst fullt launajafnrétti á Íslandi.

Skýrsluna má nálgast hér