Jarðræktarstyrkir og landgreiðslur fyrir árið 2026
Opið er fyrir umsóknir fyrir almenna jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2026.
Umsóknum skal skilað fyrir miðnætti, fimmtudaginn 1. október nk. Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir skýrsla um ræktun ársins 2026 í skýrsluhaldskerfinu Jörð.
Athygli er vakin á að þeir framleiðendur sem sóttu um jarðræktarstyrk vegna útiræktaðs grænmetis þurfa að sækja sérstaklega um almennan jarðræktarstyrk.
Jarðræktarstyrkir
Jarðræktarstyrkjum skal varið til nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar og ræktunar annarra fóðurjurta. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk.
Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs. Einnig ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á ræktunarári. Beit búpenings telst ígildi uppskeru og því styrkhæf, einnig nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis.
Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári.
Landgreiðslur
Skilyrði fyrir landgreiðslum er uppskera til fóðuröflunar á ræktuðu landi sem umsækjanda er heimilt að nýta. Ef einungis hluti þess lands sem sótt er um styrk út á gefur uppskeru, skal skrá sérstaklega fjölda þeirra hektara.
Ágangur álfta og gæsa
Þá er einnig vakin athygli á að greiddur er stuðningur vegna skemmda sem hlotist hafa af ágangi álfta og gæsa á nýrækt, við endurrækt á túnum, kornrækt og rækt annarra fóðurjurta
Umsóknir berist á Afurð.