21. september 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynningarfundur: Nýjar losunartölur og staða loftslagsaðgerða

{image.Description}

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til kynningar á nýjum losunartölum Íslands og stöðu loftslagsaðgerða.

Kynningin fer fram þriðjudaginn 22. september kl. 11.

Jóhann Páll mun á fundinum fara yfir stöðu loftslagsmála, kynna stöðu loftslagsaðgerða, umbætur í stjórnsýslu málaflokksins og skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða auk forgangsverkefna í málaflokknum.

Þá fer sérfræðingur á sviði losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun yfir heildarlosun gróðurhúsalofttegunda og stöðu Íslands gagnvart loftslagsskuldbindingum.