17. september 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Landspítali tekur við nýju húsnæði bráðamatsdeildar

{image.Description}
Mynd: Landspítali

Landspítali hefur formlega tekið við nýju húsnæði bráðamatsdeildar sem Nýr Landspítali ohf. (NLSH) hefur reist. Nýja deildin er hluti af stöðugum umbótum Landspítala sem miða að því að efla bráðaþjónustu, draga úr bið og bæta flæði sjúklinga.

Stór áfangi sem bætir þjónustu og eykur öryggi sjúklinga

„Þetta er afar stór áfangi fyrir Landspítala og fólk sem leita þarf eftir bráðþjónustu spítalans því ekki einungis fáum við 20 ný rými fyrir sjúklinga sem létta mun álagi af bráðamóttökunni heldur er þessi nýja eining mikilvægur hlekkur í endurskipulagningu bráðaþjónustunnar til framtíðar,” segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.

„Heilbrigðisstofnun er ekki aðeins húsnæðið, heldur fyrst og fremst fólkið sem þar starfar. Ég afhendi nýja bráðamatsdeild með þökkum til þeirra sem staðið hafa vaktina á bráðamóttökunni og haldið þjónustunni gangandi við erfiðar aðstæður. Þessi nýja deild mun auka öryggi sjúklinga, stytta tímann frá því að sjúklingur kemur veikur inn á bráðamóttöku og þar til hann fær greiningu og meðferð,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún afhenti forstjóra Landspítala lyklavöld að matsdeildinni í dag.

Bráðamatsdeild lyflækninga veitir samþætt sérfræðimat, skilvirka greiningu og þverfaglega þjónustu svo sjúklingar fái rétta meðferð á réttum stað eins snemma í ferlinu og unnt er.

Styttir legutíma og bið eftir þjónustu

Á deildinni eru 20 rúm, bæði í einbýlum og tvíbýlum. Þar vinnur þverfaglegt teymi að mati, greiningu, meðferð og endurhæfingu og í nánu samstarfi við bráðamóttöku og ýmsar sérgreinar Landspítala. Áhersla er lögð á að viðhalda virkni sjúklinga og tryggja að þeir komist sem fyrst í það úrræði sem hentar þörfum þeirra. Að lokinni dvöl geta sjúklingar lagst inn á legudeild eða útskrifast heim með eða án áframhaldandi dag- og göngudeildarþjónustu eða fengið tilvísun í önnur úrræði.

Starfsemi bráðamatsdeildar byggir á fyrirmyndum sem þekkjast víða erlendis þar sem bráðalyflæknar gegna lykilhlutverki í mati og meðferð sjúklinga og stýringu sjúklingaflæðis. Teymisvinna þvert á fagstéttir, yfirsýn og samhæfing þjónustunnar eru þar lykilatriði.

Með nýju bráðamatsdeildinni er markmiðið að stytta legutíma, draga úr bið og bæta flæði um bráðaþjónustu Landspítala. Samhliða er unnið að því að styrkja dag- og göngudeildarþjónustu og heimaþjónustu spítalans þannig að sjúklingar geti útskrifast í viðeigandi úrræði um leið og aðstæður leyfa.

Með formlegri afhendingu húsnæðisins hefst nú lokaundirbúningur áður en starfsemi tekur til starfa.