Nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar: Föst krónutala í stað prósentu
Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verða framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi (40%). Upphæðin verður 7.000 kr. fyrir hvern fluglegg eða 14.000 kr. fyrir ferð fram og til baka. Engar aðrar breytingar eru gerðar á Loftbrú. Íbúar landsbyggðarinnar með lögheimili innan sama skilgreinda svæðis eiga því áfram kost á lægri flugfargjöldum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingar munu einnig áfram geta nýtt afsláttarkóða í alls sex flugleggjum.
Loftbrúarverkefnið var sett á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu. Viðtökur voru góðar og ferðum með Loftbrú hefur fjölgað ár frá ári. Á síðustu árum hefur heildarkostnaður vegna Loftbrúar farið nokkuð fram úr áætlunum. Af þessum sökum ákváðu stjórnvöld að gera breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar í því skyni að nýta fjárveitingar ríkisins sem best.
„Þjónusta Loftbrúar hefur verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
„Í nýju fyrirkomulagi getur afsláttur orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld en að sama skapi lægri eftir því sem fargjöldin hækka. Fólk getur þannig nýtt afsláttarkóða sína eins vel og kostur er. Að sama skapi dregur úr hvata að flugfargjöld hækki samhliða hækkandi niðurgreiðslu frá ríkinu með afsláttarkóðunum. Þannig getur þetta einnig haft góð áhrif til að draga úr verðbólgu,“ segir Eyjólfur.
Um 600 milljónir kr. hafa verið áætlaðar til Loftbrúar á ári síðastliðin ár og sú fjárheimild stendur óbreytt. Heildarkostnaður vegna verkefnisins hefur á hinn bóginn reynst meiri á árunum 2023-2025 en því var mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru heildarútgjöld Loftbrúar um 140 milljónum króna fram úr áætlunum.
Alls eiga um 62 þúsund íbúar á landsbyggðinni kost á því að nýta sér Loftbrú. Á síðustu árum hafa um eða yfir 80 þúsund ferðir verið keyptar með afsláttarkóðum Loftbrúar. Meðalniðurgreiðsla á síðustu árum hefur verið frá sex til rúmlega níu þúsund krónum.