Ráðherra fær afhenta ársskýrslu kærunefndar jafnréttismála
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, fékk í dag afhenta árskýrslu kærunefndar jafnréttismála fyrir árið 2025. Ari Karlsson, formaður nefndarinnar, kynnti skýrsluna á fundi með ráðherra og fór yfir helstu niðurstöður.
Skýrslan er aðgengileg á vef Stjórnarráðsins.
Í skýrslunni er farið yfir starfsemi nefndarinnar, málafjölda og niðurstöður, málsmeðferðartíma og aðrar tölfræðiupplýsingar. Á síðasta ári bárust nefndinni 45 mál og hafa þau aldrei verið fleiri. 18 mál voru afgreidd en frá því að lög um jafna meðferð á vinnumarkaði voru sett hefur málum þar sem reynir á aðra mismunun vegna kyns fjölgað jafnt og þétt.
Þetta er fimmta ársskýrslan sem kærunefndin skilar til þess ráðherra sem fer með jafnréttismál. Jafnréttismálin voru flutt til dómsmálaráðuneytisins frá félagsmálaráðuneytinu árið 2025 þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð.