30. október 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra undirritar viljayfirlýsingu um varðveislu Þristsins

{image.Description}
Frá vinstri: Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skóga, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Sveinn Runólfsson, formaður stjórnar Þristasjóðs og Tómas Dagur Helgason, formaður stjórnar Þristavinafélagsins.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag viljayfirlýsingu um framtíðarvarðveislu Þristsins, flugvélarinnar Páls Sveinssonar TF-NPK. Undirritunin fór fram í Flugsafni Íslands á Akureyri þar sem flugvélin hefur verið til sýnis, en þessi sögufræga vél gegndi mikilvægu hlutverki við uppgræðslu lands í rúma þrjá áratugi.

Ásamt ráðherra undirrituðu yfirlýsinguna Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, Sveinn Runólfsson, formaður stjórnar Þristasjóðs, Tómas Dagur Helgason, formaður stjórnar Þristavinafélagsins, og Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skóga. Viljayfirlýsingin kveður á um að safnið fái vélina til eignar, ásamt varahlutum, búnaði og gögnum og er stefnt að því að Þristurinn verði afhentur safninu til eignar og varðveislu fyrir lok árs 2026.

Þristurinn kom til Íslands 1943 og sinnti þá flutningum fyrir Bandaríkjaher. Síðar fékk hann heitið Gljáfaxi og flaug með farþega innanlands og í millilandaflugi fyrir Flugfélag Íslands. Það var svo árið 1972 sem Flugfélagið gaf Landgræðslu ríkisins vélina. Þristurinn var eftir það notaður til að dreifa fræjum og áburði yfir víðáttumikil uppblásturssvæði. Þegar reglubundnu landgræðsluflugi Þristsins lauk árið 2005 tók Þristavinafélagið við umsjón vélarinnar, sem hefur verið til sýnis á Flugsafninu frá 2008.

 

„Í á fjórða áratug dreifði Þristurinn um þrjátíu og fimm þúsund tonnum af fræjum og áburði yfir uppblásið og örfoka land, í nærri níu þúsund flugferðum. Flugmenn, umsjónarmenn og fjöldi annarra velunnara lögðu þar hönd á plóg og margir gáfu vinnu sína. Það munaði um minna á tímum þegar landið var að fjúka burt. Fáir safngripir segja jafn fjölbreytta sögu – um samgöngur, samfélag og það hvernig tæknin var nýtt til að græða upp landið,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, við undirritunina.

Ráðherra þakkaði í ávarpi sínu jafnframt Þristavinafélaginu, Flugsafni Íslands og öðrum velunnurum fyrir að standa vörð um vélina og sögu hennar.