27. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Réttur til endurgreiðslu sjúkrakostnaðar utan EES framlengdur til loka september 2027

{image.Description}

Með breytingum á lögum um sjúkratryggingar sem samþykktar voru á Alþingi í júní sl. var felld brott almenn heimild til endurgreiðslu kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu sem sjúkratryggðir verða fyrir utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og hún bundin við afmarkaða hópa, svo sem námsmenn. Í frumvarpi um breytingarnar var einkum vísað til þess að þessi réttur væri ekki fyrir hendi hjá öðrum Norðurlandaþjóðum og að einstaklingar gætu almennt tryggt sig fyrir þessum kostnaði í gegnum ferðatryggingar á einkamarkaði. Breytingin átti að taka gildi 1. janúar næstkomandi en ráðherra hefur með reglugerð frestað gildistökunni til loka september á næsta ári.

Eftir að lögin voru samþykkt fóru ráðuneytinu að berast erindi frá einstaklingum og félagasamtökum, m.a. Umhyggju – félagi langveikra barna og MND samtökunum, þar sem bent er á að ferðatryggingar, t.d. í gegnum kreditkort, bæta almennt ekki sjúkrakostnað sem fellur til erlendis ef hann varðar undirliggjandi sjúkdómsástand.

Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að taka ábendingarnar til nánari athugunar, m.a. með tilliti til möguleika þessara hópa á tryggingavernd á einkamarkaði. Til að tryggja fyrirsjáanleika og áframhaldandi réttindi þeirra sem málið varðar meðan málið er til skoðunar hefur gildistöku umræddrar lagabreytingar því verið frestað til 30. september 2027.