Samkomulag Íslands, Liechtenstein, Noregs og Ungverjalands um nýtt tímabil Uppbyggingarsjóðs EES undirritað
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði í gær, samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES í Ungverjalandi fyrir árin 2021–2028.
Samkomulagið er milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Ungverjalands hins vegar. Greiðslur til Ungverjalands hafa legið niðri um árabil þar sem ekki náðist samkomulag við fyrri valdhafa í Ungverlandi um starfsemi sjóðsins þar í landi.
Samkvæmt samkomulaginu verður unnið að þremur áætlunum á tímabilinu:
- Græn umskipti (Green transition)
- Menning (Culture)
- Inngilding og valdefling Rómafólks (Roma inclusion and empowerment)
Með undirritun samkomulagsins hefst undirbúningur að úthlutun styrkja úr sjóðnum í Ungverjalandi á nýju framkvæmdatímabili.
Markmið Uppbyggingarsjóðs EES er að draga úr félagslegum og efnahagslegum mismun í Evrópu og efla tvíhliða samskipti og samstarf milli gjafaríkjanna þriggja, Íslands, Liechtenstein og Noregs, og þeirra 15 aðildarríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðnings sjóðsins.