Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum
Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum kom saman til fundar í fyrsta sinn í utanríkisráðuneytinu við Austurhöfn í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skipaði hópinn nýverið en honum er ætlað að greina stöðu Íslands í alþjóðaviðskiptakerfinu og þá þróun sem hefur orðið innan þess á undanförnum misserum. Er hópnum í þessu sambandi falið að greina tækifæri og áskoranir í alþjóðaviðskiptakerfinu út frá hagsmunum Íslands og kortleggja ný viðskiptatækifæri. Vinna hópsins nær til bæði nær- og fjærmarkaða – þar með talið innri markaðar EES, Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada og í Asíu.
„Á umrótatímum er mikilvægt að stjórnvöld og atvinnulífið snúi bökum saman og starfi sameiginlega að hagsmunum Íslands . Spretthópurinn sem nú hefur tekið til starfa er skipaður öflugu fólki með mikinn metnað fyrir Íslands hönd og hef ég miklar væntingar til starfsins sem hann mun leysa af hendi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Hópurinn er skipaður forystufólki úr atvinnulífinu, þeim Bjarna Benediktssyni, sem jafnframt er formaður hópsins, Hrund Rudolfsdóttur og Sigurði Hannessyni. Þá eiga sæti í hópnum fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Högni S. Kristjánsson, sendiherra á viðskiptaskrifstofu, og Rún Ingvarsdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hópurinn hefur sér til halds og trausts teymi frá viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Íslandsstofu.
Spretthópnum er ætlað að móta tillögur að skýrum sameiginlegum markmiðum stjórnvalda og atvinnulífs, auk tillagna um ákveðnar aðgerðir sem unnt er að ráðast í, til skemmri og meðallangs tíma. Er honum enn fremur falið að skoða hvernig staða Íslands verði best tryggð til að styðja við samkeppnishæfni á sviði alþjóðaviðskipta og hagvöxt, hvernig efla megi hagsmunagæslu en einnig horfa til nýrra viðskiptatækifæra.
Þá er hópnum enn fremur falið að fjalla um EES-samninginn, það er hvernig megi best gæta hagsmuna Íslands á vettvangi samningsins og leggja enn betri rækt við samstarfið á grundvelli hans, svo sem þegar kemur að upptöku gerða og innleiðingu þeirra í landsrétt.
Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.