Stafrænt Ísland eitt jákvæðasta dæmið um framfarir í opinberri stjórnsýslu
Ráðstefnan Tengjum ríkið var haldin í sjöunda sinn í gær undir yfirskriftinni „Framtíð Ísland.is“. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, setti ráðstefnuna og sagði í opnunarávarpi að betri og einfaldari stafræn þjónusta væri ein skilvirkasta leiðin til að reka ríkið af ábyrgð.
Ánægja almennings hefur aldrei mælst meiri
Daði Már sagði Stafrænt Ísland vera eitt jákvæðasta dæmið um framfarir í opinberri stjórnsýslu. Ísland væri nú í fremstu röð samkvæmt erlendum úttektum á stafrænni þjónustu og ánægja almennings hefði aldrei mælst meiri, en 86 prósent svarenda sögðust ánægð eða mjög ánægð með þjónustuna á síðasta ári.
„Við höfum lagt góðan grunn. Næsta skref er að tengja þjónustuna enn betur saman, nýta gögn af ábyrgð og færa okkur í átt að forvirkari þjónustu. Markmiðið er að fólk þurfi sjaldnar að sækja sérstaklega um þá þjónustu sem það á rétt á,“ sagði Daði Már.
Heilsuvera færist yfir á Ísland.is
Næsti stóri áfangi í þróun Ísland.is verður að gera heilsuupplýsingar og heilbrigðisþjónustu aðgengilega á Ísland.is, í stað Heilsuveru.
Breytingin er liður í því að einfalda aðgengi fólks að opinberri þjónustu og skapa einn sameiginlegan vettvang þar sem upplýsingar eru skýrar og ferlar einfaldir. Notendur eiga ekki að þurfa að þekkja skipulag stjórnkerfisins til að finna og sækja þjónustu sagði ráðherra.
Traust, samstarf og ábyrg innleiðing gervigreindar
Á ráðstefnunni var sérstaklega fjallað um tækifæri og áskoranir sem fylgja aukinni notkun gervigreindar. Ráðherra lagði áherslu á að hið opinbera þyrfti að innleiða nýja tækni af ábyrgð og yfirvegun, án þess að láta tækifærin fram hjá sér fara.
„Það tekur langan tíma að ávinna sér traust en afar stuttan tíma að glata því. Við verðum að tryggja að opinber þjónusta sé rétt, byggð á áreiðanlegum gögnum og að persónuupplýsinga sé gætt með fullnægjandi hætti,“ sagði Daði Már.
Hann bent jafnframt á mikilvægi samstarfs á milli opinberra aðila og íslenska tæknimarkaðarins. Slíkt samstarf geti bæði aukið skilvirkni í ríkisrekstri og stuðlað að nýsköpun, tækniþróun og verðmætasköpun hér á landi.
Skilvirkari ríkisrekstur og fjárhagslegur ávinningur
Daði Már sagði hagnýtingu tæknilausna og stafræna umbreytingu styðja við markmið ríkisstjórnarinnar um hallalausan ríkisrekstur á næsta ári.
„Betri og einfaldari stafræn þjónusta er nefnilega ekki bara þægindaauki fyrir almenning, heldur ein skilvirkasta leiðin sem er fær til að reka ríkið af ábyrgð, bæði beinum fjárhagslegum ávinningi fyrir ríkissjóð og þjóðhagslegum ávinningi fyrir samfélagið í heild,“ sagði Daði Már.
Um Tengjum ríkið 2026
Á Tengjum ríkið koma saman fulltrúar hins opinbera og tæknimarkaðarins til að fjalla um stafræna opinbera þjónustu, samstarf og nýja tækni.
Fyrirlesarar ráðstefnunnar í ár voru:
- Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.
- Christina Bellamy, aðalframkvæmdastjóri Government Digital Service.
- Christian Bason, stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður.
- Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID.
- Eiríkur Nilsson, meðstofnandi og tæknistjóri Aranja.
- Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu.
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri gervigreindarverkefnis Fenris.