Starfshópur leggur til þrjár breytingar á kosningalögum
Dómsmálaráðherra hefur sent forseta Alþingis bréf með skýrslu starfshóps um aukið jafnræði og þingsætadrefingu. Hópurinn var skipaður í október á síðasta ári og skilaði endanlegri skýrslu til ráðuneytisins í júlí s.l. Í bréfinu leggur ráðherra til að stofnuð verði þingmannanefnd til að fjalla um tillögur starfshópsins.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, leiddi vinnu hópsins en auk hans voru í honum þau Sigrún Helga Lund, prófessor í tölfræði við Háskóla Íslands, og Þorkell Helgason, prófessor í stærðfræði.
Starfshópurinn leggur til þrjár breytingar á kosningalögum. Í fyrsta lagi að kjördæmissætum verði fækkað niður í sex sæti í hverju kjördæmanna sex og að hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti.
Í öðru lagi er lagt til að þingsætum verði í heild ráðstafað hlutfallslega jafnt til kjördæmanna miðað við tölu kjósenda á kjörskrá og í þriðja lagi að ákvæðum um útdeilingu jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt í þeim tilgangi að gera úthlutun stöðugri og líkari hreinni kjördæmisúthlutun sæta.
Eins og áður segir hefur skýrslu starfshópsins og drög að frumvarpi verið skilað til Alþingis sem tekur ákvörðun um næstu skref en mikilvægt er að allir þingflokkar komi að breytingu af þessu tagi á kosningalögum.