Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna kynnt til samráðs
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi. Markmiðið með áætluninni er að draga úr fátækt barna og stuðla að því að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku og farsældar óháð efnahag og félagslegri stöðu fjölskyldna þeirra.
Í drögunum er lögð áhersla á að fjárhagsstaða heimilis takmarki ekki möguleika barna til þátttöku í skólastarfi, tómstundum og félagslífi. Jafnframt er horft til þess að fátækt barna geti haft víðtæk áhrif á líf þeirra, meðal annars á félagslega þátttöku, heilsu, líðan og tækifæri til framtíðar. Sérstök áhersla er lögð á stöðu barna og fjölskyldna sem eru í aukinni hættu á að búa við fátækt og félagslega einangrun, þar með talin börn einstæðra foreldra.
„Skert tækifæri barna til farsældar og frama í lífinu vegna fátæktar er ekki ástand sem við sem samfélag getum unað við. Að útrýma henni er baráttumál sem allir hljóta að geta sammælst um. Fyrir það þarf skýra stefnu, aðgerðir og eftirfylgni, sem við kynnum hér,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
Stefnunni er ætlað að skapa heildstæðari umgjörð um aðgerðir stjórnvalda gegn fátækt barna. Lögð er áhersla á markvissar og samræmdar aðgerðir, skýra ábyrgð á framkvæmd og reglubundið mat á árangri. Með því verði jafnframt unnt að fylgjast betur með þróun fátæktar barna og áhrifum þeirra aðgerða sem gripið er til.
Kolbrún Áslaug Baldursdóttir er formaður stýrihópsins sem leiddi vinnuna en stýrihópurinn hóf störf í nóvember á síðasta ári. Við mótun stefnunnar og aðgerðaáætlunarinnar hefur verið lögð áhersla á samráð við hagaðila. Vinnan er jafnframt liður í því að samræma betur aðgerðir stjórnvalda á þessu sviði og tryggja skýrari eftirfylgni með framkvæmd þeirra. Stefnan og aðgerðaáætlunin er unnin í nánu samstarfi við félags- og húsnæðisráðuneytið og fjármála-og efnahagsráðuneytið.
Drög að stefnunni og aðgerðaáætlun eru nú til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda til 2. októbers. Almenningi og hagaðilum gefst þar kostur á að koma á framfæri umsögnum og ábendingum áður en tillagan verður fullunnin.