Stofnun þekkingarseturs við Breiðafjörð
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirritaði í gær, 22. október 2026, samning við Sveitarfélagið Stykkishólm um stofnun og rekstur nýs þekkingarseturs við Breiðafjörð. Setrið verður staðsett í Stykkishólmi og er fyrsta svæðisbundna þekkingarsetrið af þessu tagi á Vesturlandi, en sambærileg setur starfa nú þegar í öllum öðrum landshlutum á grundvelli samninga við ráðuneytið.
Markmið nýja þekkingarsetursins er að bæta aðgengi að háskólanámi, efla rannsóknir og skapa aukin tækifæri til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Vesturlandi, með sérstaka áherslu á byggðir við Breiðafjörð.
Samstarf verður í öndvegi í starfsemi setursins sem ætlað er að tengja saman mennta- og rannsóknastofnanir, sveitarfélög og atvinnulíf. Þannig verður stuðlað að auknu samstarfi, miðlun þekkingar og þróun nýrra verkefna sem byggja á styrkleikum og sérstöðu svæðisins. Við mótun starfseminnar verður jafnframt lögð áhersla á að mæta þörfum nærsamfélagsins.
„Kjarni málsins er einfaldur frá mínum sjónarhóli. Aðgengi að menntun, rannsóknum og stuðningi við nýsköpun þarf að ná til alls landsins. Fólk þarf að geta sótt háskólanám og skapað sér tækifæri í heimabyggð. Það skiptir sköpum fyrir þróun byggða. Grunnurinn hér á Snæfellsnesinu er traustur og ég hvet fólk til að vinna saman að því að nýta tækifærin sem felast i þessum samningi. Þekkingarstofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og vinnuklasar þurfa að gera svona í sameiningu. Þekkingarklasar sem ná árangri og gera alvöru gagn fyrir sín byggðarlög eiga það sameiginlegt að vera suðupottar með mörgum ólíkum hráefnum. Ég vona að framlag ráðuneytisins styrki þessa heild. Tengi fólkið saman og látið það rekast á með kaffibollana sína. Ráðuneytið leggur til kaffið, en það er fólkið sem verður að hella upp á og bjóða í partýið,“ segir Logi Einarsson
„Við bindum vonir við að setrið verði vettvangur fyrir öflugt samstarf um menntun, rannsóknir og nýsköpun á Vesturlandi, einkum á Snæfellsnesi og í Dalabyggð, með sérstakri áherslu á Breiðafjörð. Markmiðið er að efla þá starfsemi sem þegar er til staðar í byggðarlögunum, bæta aðgengi að menntun og þekkingu í heimabyggð og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar á svæðinu. Það er ánægjulegt að finna fyrir þeim áhuga og stuðningi sem Logi Einarsson ráðherra og ráðuneyti hans sýna verkefninu. Við hlökkum til að vinna áfram saman að uppbyggingu setursins og nýta þau tækifæri sem í verkefninu felast,“ segir Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi.
Uppbygging þekkingarsetursins á sér nokkurn aðdraganda. Tillaga um stofnun þess var ein af megintillögum starfshóps Stykkishólmsbæjar, Byggðastofnunar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi árið 2022. Uppbygging þekkingarnets var jafnframt meðal áherslna sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum í skýrslunni Framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar, sem afhent var þáverandi umhverfisráðherra árið 2024.
Í heimsókn sinni til Stykkishólms hitti ráðherra einnig fulltrúa sveitarfélaga á svæðinu og kynnti sér menningarstarfsemi í bænum. Hann heimsótti meðal annars Vatnasafnið og Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla undir leiðsögn heimafólks.