Tilkynning er varðar netöryggi: alvarlegir veikleikar í PHP
Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, vekur athygli á því að tveir mjög alvarlegir veikleikar hafa fundist í PHP, forritunarmáli sem knýr mikinn fjölda vefsíðna. Þar á meðal eru margar síður sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla sem öll eru skrifuð í PHP forritunarmálinu. Gallarnir gætu gert árásaraðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum í gegnum internetið.
Fyrirtæki og stofnanir sem reka PHP-kerfi ættu að setja upp öryggisuppfærslur um leið og þær verða aðgengilegar en reiknað er með þeim klukkan 14:00 í dag, 21. október. Ef það er ekki mögulegt getur þurft að takmarka aðgang að kerfum eða taka þau niður tímabundið.
Nágrannalönd okkar hafa gripið til ýmissa ráðstafana, þar má nefna að Hollendingar tóku niður vefsíðu auðkennisþjónustu landsins, stóra fréttasíðu og einhverjar síður þingsins. Finnland ætlar að gera slíkt hið sama.
Almenningur gæti orðið var við tímabundnar truflanir á sumum vefþjónustum á meðan unnið er að uppfærslum og vörnum.
Nánari upplýsingar má finna í frétt á vef CERT-IS hér: https://cert.is/frettasafn/alvarlegir-veikleikar-i-php/