Utanríkisráðherra býður upp á opið samtal um utanríkisþjónustuna á Akureyri
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður á Akureyri föstudaginn 18. september þar sem hún býður upp á samtal við íbúa um utanríkisþjónustuna og hvernig hún þjónar hagsmunum Íslands, bæði heima og erlendis.
Um er að ræða ferðaröð ráðherra um landið en áætlunin er að færa samtalið um utanríkismál nær fólkinu í landinu og gera grein fyrir því hvernig utanríkisþjónustan beitir sér daglega á alþjóðavettvangi í þágu heimilanna, neytenda og fyrirtækja um land allt.
Opinn viðtalstími með utanríkisráðherra í Borgum við Norðurslóð á Akureyri, föstudaginn 18. september á milli kl. 14.00 - 16.00.
Skráning fer fram hér.