28. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fór fyrir íslenskri sendinefnd á sjávarútvegssýningunni í Qingdao

{image.Description}

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti í dag sjávarútvegssýninguna í Qingdao í Kína en hún fór þar fyrir sendinefnd íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sem stunda viðskipti í Kína en það var Íslandsstofa sem hafði veg og vanda með þátttöku Íslands í sýningunni. Þorgerður mun síðar í vikunni eiga fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, en um þessar mundir eru 55 ár liðin frá því Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband.

Íslenskur utanríkisráðherra heimsótti Kína síðast árið 2018. Fiskútflutningur frá Íslandi til Kína fer vaxandi og beint flug milli landanna, sem nú er hafið á vegum Air China, opnar frekari tækifæri til útflutnings á ferskum fiski á Kínamarkað. Er megintilgangur heimsóknar utanríkisráðherra til Kína að liðka fyrir viðskiptum milli landanna, jafnframt því að ræða bæði tvíhliða mál og alþjóðamál við kínverska ráðamenn.

„Það er mikilvægt að gæta hagsmuna Íslands á sviði utanríkisviðskipta í hvívetna og hér í Kína eru ýmis tækifæri til staðar, ekki aðeins með tilliti til fiskútflutnings heldur einnig þekkingar Íslendinga á nýtingu jarðvarma og hugvitsamlegra lausna sem íslensk fyrirtæki hafa þróað,“ segir Þorgerður Katrín sem í gær heimsótti kínverska orkufyrirtækið SINOPEC með fulltrúum íslenska orkufyrirtækisins Arctic Green Energy. Fyrirtækið Carbon Recycling International hefur einnig þróað verkefni á Kínamarkaði undanfarin ár og selt þá tækni sem fyrirtækið hefur þróað til að breyta koltvísýringi í metanól.

Í tengslum við þátttöku í sjávarútvegssýningunni í Qingdao í dag átti utanríkisráðherra einnig fundi með Marianne Sivertsen Næss, sjávarútvegsráðherra Noregs, og Joanne Thompson, sjávarútvegsráðherra Kanada, sem báðar eru staddar í Kína til að sækja sömu ráðstefnu.  Þorgerður Katrín mun funda með borgaryfirvöldum í Qingdao í fyrramálið sem og fulltrúum fyrirtækja en í kjölfarið heldur hún aftur til Beijing þar sem hún mun hún eiga fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, sem fyrr segir. Þorgerður Katrín tók í gær þátt í móttöku í sendiráði Íslands í Beijing í tilefni 55 ára afmælis stjórnmálasamskipta Íslands og Kína og flutti hún ávarp við það tækifæri. Ráðherra hitti enn fremur í dag fyrir íslensk fyrirtæki og samstarfsaðila þeirra í sérstakri móttöku í Qingdao.