19. september 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra Úkraínu í heimsókn á Íslandi

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, funduðu í utanríkisráðuneytinu við Austurhöfn í dag.

Ráðherrarnir ræddu stöðu mála í Úkraínu í aðdraganda vetrar og áframhaldandi stuðning Íslands er lýtur að varnartengdum stuðningi, efnahags- og mannúðaraðstoð, og þvingunaraðgerðum gagnvart Rússlandi. Rætt var um brýna þörf Úkraínu fyrir auknar loftvarnir og stuðning í orkumálum.

Þá ræddu ráðherrarnir alvarlega stöðu sem hefur skapast á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip. Áríðandi er að Úkraína komi uppskeru sinni á alþjóðamarkað, sem skiptir miklu fyrir efnahagslega afkomu landsins og fæðuöryggi á heimsvísu.

„Hugur minn er sem fyrr hjá úkraínsku þjóðinni sem horfir fram á erfiðan vetur vegna gegndarlausra loftárása Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði sem meðal annars sjá fjölskyldum landsins fyrir hita, rafmagni og vatni“ segir Þorgerður Katrín. „Það var afar kærkomið að taka á móti Sybiha, til að undirstrika enn á ný órofa samstöðu Íslands með baráttu Úkraínu fyrir fullveldi sínu, frelsi og lýðræði, og staðfastan stuðning okkar við varnarbaráttu þeirra gegn grimmilegu landvinningastríði Rússlands.“

Á meðan heimsókn Sybiha á Íslandi stendur fundar hann einnig með utanríkismálanefnd Alþingis.